Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 45

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 45
IÐUNN Með strandmenn til Reykjavikur. 331 króknum ráðalausir og illa til reika og hugðu að láta þar fyrir berast um nóttina. Hefði þá eflaust kalið í svo miklu frosti, ef Björn hefði ekki fundið þá um kvöldið. Strandmennirnir lustu upp miklu fagnaðarópi, er þeir sáu Björn, og þóttust eiga honum líf sitt að launa. Hélt nú allur hópurinn heimleiðis að Kvískerj- um, sem eru um sjö kílómetra fyrir vestan Krókinn. Skipstjórinn var settur upp á hest Björns, því að hann var maður aldraður, feitur og þungur á fæti og mjög að þrotum kominn af göngunni. Hinir voru allir enn þá færir til gangs, enda voru þeir ungir að aldri. Þó varð Björn að selflytja þá á hesti sínum yfir Fjallsá og Hrútá, sem er nokkru vestar á sandinum, því að þær voru vatnsmiklar og illar yfirferðar. Á Kvískerjum var ekki annað fólk heima um þess- ar mundir en tvær systur Björns og unglingsdreng- ur. Þau vissu ekkert um strandið, og var ekki laust við, að þeim brygði í brún, er Björn kom með allan hópinn heim í myrkri um kvöldið. Húsakynni voru þá lítil á Kvískerjum, og því erfitt að koma skips- höfninni fyrir. Var búið um hana í bæjarhúsi áföstu við baðstofuna. Fékk hún nóg hey til að liggja á og öll þau rúmföt, sem heimamenn gátu af hendi látið. Strax um nóttina sendi Björn aðra systur sína til næsta bæjar, Hnappavalla, sem eru fjórtán kílómetra fyrir vestan Kvísker. Er þar yfir sand að fara og sjö ár á leiðinni. Skyldi hún biðja að koma þaðan boðum til hreppstjórans, Ara Hálfdánarsonar á Fagurhólsmýri, en sá bær er næstur fyrir vestan Hnappa/elli. Ari brá strax við um nóttina, kvaddi nokkra menn sér til fylgdar og hélt austur að Kvískerjúm. Komu þeir þangað í birtingu. Riðu þeir þaðan út að skipinu, og

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.