Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 46

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 46
332 Með strandmenn til Reykjavikur. IÐUNN var einn skipsmanna í fylgd með þeim. Þeir náðu matvælum og fatnaði úr skipinu og komu aftur heim að Kvískerjum um kvöldið. Þessu næst var Páll bóndi Jónsson í Svínafelli fenginn til þess að riða vestur að Kirkjubæjarklaustri og sækja Karl Einarsson sýslumann, en á meðan héldu strandmennirnir kyrru fyrir á Kvískerjum. Þegar sýslumaður kom austur í Öræfi, hófust samn- ingar milli hans og Ara hreppstjóra og Páls í Svina- felli um flutning á strandmönnunum til Reykjavíkur. Var lögð áherzla á, að þeir yrðu komnir þangað fyrir 14. febrúar, því þá þóttust menn vita um skipsferð þaðan til útlanda. Skyldu þeir Ari og Páll leggjá þrjátíu hesta til ferðarinnar undir menn og flutning og þar að auki fylgdarmenn sem þurfa þætti. Sýslumaður stakk upp á, að þeir fengju 2000 krónur fyrir ferðina, en þeir kváðust ekki geta farið fyrir minni þóknun en 2500 krón- ur, og varð það að lokum að samkomulagi. Þeir Ari og Páll voru foringjar fararinnar, en íylgdarmenn þeirra voru fjórir. Þeir voru Björn á Kvískerjum, Jón Sigurðs- son, bóndi í Svínafelli, Jón Magnússon, bóndi i Svína- felli, og Gísli Jónsson í Svínafelli. Alt voru þetta þaul- æfðir vatnamenn og vanir löngum og erfiðum ferða- lögum. Að morgni hins 24. janúar, í allgóðu veðri, lagði leiðangurinn af stað frá Kvískerjum. Var þann dag haldið að Fagurhólsmýri. Það var stutt dagleið, en strandmennirnir voru óvanir að ríða og báru ekkert skynbragð á að stjórna hestum. Þess vegna varð að siðla með þá lestaganginn fyrstu dagana, en úr því kom- ust þeir upp á að hafa taumhald á hestunum, og tók þá ferðin að sækjast nokkru greiðar. Frá Fagurhólsmýri var farið næsta dag i bærilegu

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.