Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 55

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 55
IÐUNN Meö strandmenn til Reykjavikur. 341 að hann fær tvisvar sinnum högg á höfuðið. Mun þá straumurinn hafa þrúgað honum upp undir ísþekjuna. Ekki kvaðst Björn hafa fundið til hins minsta ótta við dauðann, og var honum það þó vel ljóst, að öll sund væru lokuð með að hann bjargaðist lifandi úr þessum heljargreipum. Hann gat enga björg sér veitt, hvergi komið fyrir sig hendi né fæti, ekkert séð ann- að ert hélugráa ísbreiðuna yfir höfðinu á sér. Þó reynir hann i lengstu lög að verjast því að svelgja vatnið, unz hann missir meðvitundina. En hann rámkar þó við sér aftur og finnur þá, að hann heldur sér með báðum höndum einhvers staðar í ísskör. Ekki var hann þá meira ruglaður en það, að hann fer að þreifa fyrir sér í hægðum sínum með fót- unum, hvort hann finni nokkurs staðar botn til Björn Pálsson. þess að spyrna við, svo að hann geti hafið sig upp á skörina. En fljótið virt- ist þarna óbotnandi. Ekki þótti Birni heldur ástæða til að gefa hljóð af sér til þess að láta samferðamenn sína vita, hvar hann væri niður kominn. Hann taldi liklegt, að þeir sæju sig, ef þeir væru einhvers staðar nærri, og björguðu sér, ef nokkur tök væru á að veita honum hjálp. Og í þeirri von beitti hann síðustu kröftum til þess að halda sér við skörina. Þeir Ari og samferðamenn hans voru staddir á vest-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.