Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 59

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Side 59
IÐUNN Með strandmenn til Reykjavíkur. 345' náði hann heim að Svinafelli. Var það tveim dögum síðar en samferðamenn hans komu heim. Trúði fólk í Svínafelli varla sínum eigin augum, er það sá Björn svo fljótt heim kominn eftir þessar svaðilfarir. Björn sagði mér, að alla leiðina, þar til slysið vildi til, hefði hann kent einkennilega mikils kjarkleysis alt af þegar hann lagði út í vötn, en slíka tilkenningu kvaðst hann aldrei hafa orðið var við í vötnum, hvorki fyr né siðar. Strandmennirnir sigldu frá Reykjavik til Skotlands 10. febrúar með póstgufuskipinu Láru. Hestarnir fundust síðar um veturinn við vestri bakka Kúðafljóts. Lík Eggerts fanst um vorið,.þegar ísa leysti. Lá það uppi á vestri fljótsbakkanum. Hafði straumur* inn kastað því undir íshrönn, er hrúgast hafði upp á bakkann í leysingunum áður en slysið vildi til. Lýk ég hér svo frásögn minni af þessu ferðalagi,. sem gefur allátakanlega hugmynd um hrakninga margra útlendra sjómanna, er strandað hafa fyr og siðar við Skaftafellssanda, og langferðir Skaftfellinga, áður en brýr koinu á vatnsföllin og bifreiðar fóru að ganga austur um sveitirnar. En saga mín er skrásett að Fagurhólsmýri í Öræfum 1. september annó 1933 eftir Ara hreppstjóra Hálfdánarsyni og Birni Páls- syni á Kvískerjum, er þar var þá staddur. Nokkr- um atvikum um atburðina við Kúðafljót jók ég við haustið 1934 eftir frásögn Klemens Jónssonar, sem nú er kennari á Álftanesi. Og örfáum atriðum hefi ég bætt við frásögn þessara manna úr gamalli ísafold. Þórbergur Þórðarson

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.