Tímarit lögfræðinga - 01.12.1998, Blaðsíða 7
aðar í Tímariti lögfræðinga. Þá hafa verið kannaðar fundagerðarbækur félagsins
frá fyrstu starfsárum þess.1 Hér er stiklað á stóru og eingöngu getið um nokkra
meginþætti í þessari sögu. Hætt er við að ýmsir sem tekið hafa virkan þátt í
starfsemi félagsins á liðnum árum sakni ítarlegri umfjöllunar um einstök atriði.
Rækilegri úttekt á sögu félagsins bíður síðari tíma enda ekki annars að vænta,
sé tekið mið af blómlegu starfi þess nú á tímum, en að það eigi langa lífdaga
fyrir höndum.
2. AÐDRAGANDI AÐ STOFNUN LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS
Lögfræðingafélag íslands var stofnað 1. apríl 1958. Frumkvæði að stofnun
þess áttu fyrst og fremst prófessorar við lagadeild Háskóla íslands, einkum þeir
Ármann Snævarr og Theodór B. Líndal. Aðdragandinn var sá að innan þeirra raða
kom fram það sjónarmið að æskilegt væri að stofna á íslandi heildarsamtök lög-
fræðinga til viðbótar við þau félög lögfræðinga sem þá voru starfandi í landinu,
en mikilvægust þeirra voru Lögmannafélag íslands og Félag héraðsdómara. Voru
frumkvöðlar að stofnun félagsins ekki í vafa um að slíkt félag hefði margvíslegu
og mikilvægu hlutverki að gegna. Varð úr að sett var saman undirbúningsnefnd,
að frumkvæði þeirra manna sem fyrr eru nefndir, til að vinna að þessu máli. í und-
irbúningsnefndinni áttu sæti fulltrúar mismunandi starfshópa innan lögfræðinga-
stéttarinnar, sem var í samræmi við þá hugmynd er lá að baki að stofnun félagsins,
að það yrði vettvangur fyrir alla lögfræðinga í landinu. Þessir menn sátu í undir-
búningsnefndinni: Armann Snævarr prófessor (síðar rektor Háskóla íslands og
hæstaréttardómari), Theodór B. Líndal prófessor, Ólafur Jóhannesson prófessor
(síðar forsætisráðherra), Ami Tryggvason hæstaréttardómari (síðar sendiherra),
Einar Amalds þáverandi borgardómari (síðar hæstaréttardómari), Einar Bjamason
ríkisendurskoðandi (síðar prófessor) og Guðmundur Ingvi Sigurðsson, þá saka-
dómsfulltrúi (nú hæstaréttarlögmaður).2 Undirbúningsnefndin gekk rösklega til
verks, samdi drög að fyrstu lögum félagsins og boðaði síðan til stofnfundar sem
haldinn var í I. kennslustofu Háskóla Islands þann 1. apríl 1958. Á fundinn vom
mættir all margir lögfræðingar og samþykktu þeir allir einu hljóði stofnun fé-
lagsins. Jafnframt var þá kjörin fyrsta stjóm félagsins en í henni áttu sæti þeir
sömu og sátu í undirbúningsnefndinni.3
Þess er er rétt að geta að áður hafði verið gerð tilraun til að stofna heildar-
samtök íslenskra lögfræðinga í samvinnu við hagfræðinga.4 Á áranum 1922-
1 Fundagerðarbækur félagsins frá upphafi og til ársins 1981 eru varðveittar á Þjóðskjalasafni. Þjóð-
skjalasafn E. 75.
2 Armann Snævarr: „Við stofnun Lögfræðingafélags íslands hinn 1. aprfl 1958“. Tímarit lög-
fræðinga 1958, bls. 29-35. Sjá ennfremur fundargerð stofnfundar frá 1. apríl 1998. Þjóðskjalasafn
E. 75.
3 Fundargerð stofnfundar. Þjóðskjalasafn E. 75.
4 Um stofnun og starfsemi Lögfræðinga- og hagfræðingafélags íslands sjá Arnljót Björnsson:
„Lögfræðinga- og hagfræðingafélag íslands 1919-1925“. Tímarit lögfræðinga 1986, bls. 205-206.
Sjá ennfremur Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. „Inngangur". I. ár, I. hefti, bls. 1-2.
259