Tímarit lögfræðinga - 01.12.1998, Blaðsíða 29
1. Þingskapaþáttur
Meginuppistaða hans eru reglur um dómstóla og réttarfar, einkum meðferð
mála fyrir dómi. Margt efni úr Þingskapaþætti er í öðrum þáttum Staðarhóls-
bókar og má þar nefna Vígslóða, Ómagabálk, Festaþátt, Landabrigðisþátt,
Kristinna laga þátt, Fjárleigur og Erfðaþátt.5
Þótt réttarfarsreglur séu einkum í Þingskapaþætti eru þær einnig á ýmsum
öðrum stöðum, bæði í Staðarhólsbók og Konungsbók. Réttarfarsreglum er iðu-
lega skipað í samhengi við sjálfar efnisreglumar, svo sem um það hvemig aðild
máls sé háttað, hvernig sanna skuli o. s. frv.
2. Lögsögumannsþáttur
Þar em reglur um kosningu lögsögumanns og starfsskyldur hans.
3. Lögréttuþáttur
Hér getur að finna ákvæði um skipulag og starfshætti lögréttu.
4. Baugatal
Sá þáttur geymir reglur um vígsbætur, nánar tiltekið hvemig ættingjar veg-
anda eiga að greiða ættingjum hins vegna bætur. í lok þáttarins em griðamál og
5 Hér skulu talin ákvæði úr Þingskapaþætti Konungsbókar (Grágás Ia) sem eru í Vígslóða
Staðarhólsbókar (Grágás II). Tilhögun er sú að ákvæði eru talin í þeirri röð sem þau eru í
Konungsbók og síðan vísað til hvers þáttar Staðarhólsbókar: Ia, 41, II, 326a; Ia, 48, II, 348b; Ia,
57-58, II, 329c, 327c, 329a, 330c, sbr. II, 284c, 330c; Ia, 59-60, II, 328b-c, 327b-c; Ia, 62, II, 318b-
c, 32 la, 320a-b, 319b; Ia, 114, II, 374c; Ia, 119, II, 328b-c; Ia, 125, II, 344c, 345b, 364b; Ia, 126,
II, 376c; Ia, 128, II,320b.
Ákvæði úr Þingskapaþætti Konungsbókar sem eru í Ómagabálki Staðarhólsbókar: Grágás Ia, 51,
II, 117-118; Ia, 70, II, 117a; Ia, 119, II, 128f, 148f, 148a, 364; Ia, 120, II, 117.
Akvæði úr Þingskapaþætti Konungsbókar sem eru í Festaþætti Staðarhólsbókar: Grágás Ia, 55, II,
209a.
Akvæði úr Þingskapaþætti Konungsbókar sem eru f Landabrigðaþætti Staðarhólsbókar: Grágás Ia,
66, II, 458b-d; Ia, 68, II, 458c; Ia, 69, II, 458c; Ia, 71-72, II, 458d; Ia, 73, II, 458f; Ia, 75, II, 459a
og c; Ia, 77, II, 459; Ia, 86, II, 459g; Ia, 99, II, 458c, 459a; Ia, 104, II, 458c; Ia, 114, II, 445c, 433b,
434a; Ia, 117, II, 495c.
Ákvæði úr Þingskapaþætti Konungsbókar sem eru í Kristinna laga þætti Staðarhólsbókar: Grágás
Ia, 78, II, 21a.
Ákvæði úr Þingskapaþætti Konungsbókar, sem eru í Staðarhólsbók, þætti sem nefnist Um
fjárleigur: Grágás Ia, 89, II, 282; Ia, 109, II, 284c; Ia, 112, II, 225b; Ia, 114, II, 227a, 228a; Ia, 121,
II, 284; Ia, 124, II, 248; Ia, 128, II, 264a; Ia, 129, II, 265a; Ia, 130, II, 267a; Ia, 131, II, 268a; Ia,
132, II, 268b; Ia, 132, 269a-c; Ia, 133, II, 266b, 270a; Ia, 134, II, 271a-c, 272b-c; Ia, 135, II, 272a
og d, 390a; Ia, 136, II, 272c; Ia, 137, II, 273a, 274b; Ia, 138-39, II, 276b; Ia 139-40, II, 277a-b; Ia,
140, II, 277b, 278d, 274a, 278a; Ia, 141, II, 278b-c.
Ákvæði úr Þingskapaþætti Konungsbókar sem eru f Erfðaþætti Staðarhólsbókar: Grágás Ia, 128, II,
76a, 96c.
Stuðzt er við spássíugreinar í eintaki Páls Briems af Konungsbók, en tekið skal fram að nokkur
álitamál eru um samsvaranir. Eigi að síður sýnir þetta yfirlit hversu víða ákvæði úr Þingskapaþætti
Konungsbókar eiga sér samsvörun í Staðarhólsbók, enda eru réttarfarsákvæði mjög f tengslum við
efnisákvæðin, þótt ákvæðin um dómaskipan og sjálfa málsmeðferðina séu í Þingskapaþætti.
281