Búnaðarrit - 01.01.1903, Page 7
3
Komi það fyrir þann og þann veturinn, að ekki fáist
dráttarfæri, sein helzt á sér stað hér sunnanlands, þá er
mannsæfin nógu löng og vitið gefið til fyrirhyggju, og ekki
alt undir einum vetri að eiga. Það er ofdýrt að reiða
grjótið að vorinu. Og aumingja hestarnir, grannir og þrótt-
litlir, milli heys og grasa. Og þegar eg er að tala um
grjótaðdrættina að vetriuum, þá minnist eg um leið margra
bæja með illfærum tröðum og óþrifasvaði í kring um húsin
mestan tíma ársins, en með óþrjótandi smágrjót alt í kring,
sem býður sig mannshendinni til afnota, án þess að nokkru
só niður slökt.
H.
Með kvöldflóðinu voru hátar á leið úr Borgarnesi að
sigla upp eftir Hvítá. Einhvern tíma kemur að því að
uotaður verður meira en nú þessi eini lagarvegur landsins,
sem liggur frá höfuðstaðnum og mannfjöldanum við Faxa-
flóa beint á brautina norður. Ekki efamál að grunnskreiður
hjólabátur treður strauminn og fer það sem islenzk skip
fara nú. Það er afarmikið gras beggja megin Hvitár hið
neðra, og stórum má það aulca og bæta með vatnsveiting-
um. Seinustu árin liefir nokkuð af heyi komið þaðau til
Keykjavíkur, og hún gæti tekið við miklu meira, en sam-
göngufærin eru enn þá oídýr, til þess að það borgi sig.
JÞarna beggja megin úrinnar ætti að mega búast við stórum
smjörbúum, sem væru einkar vel sett, væri á öllurn tímum
árs hægt að koma smjöriuu frá sér úr Borgarnesi. Aðal-
seljandi smjörsins okkar á Englandi telur það mikið mein,
að ekki er sent árið um kring. Gufubátsferðir í Borgarnes
að vetrinum get eg þó því að eins gjört mór von um, að
póstflutningur vestur og norður só látinn fara þar um, eða
með öðrum orðum að landpóstar tækju sig upp þaðan, og
er það þýðingarmikið íhugunarefni, hvort sá mikli sparnaður
á póstflutningi á landi mundi ekki töluvert jafua aukiun
kostnað við að liafa bátinn í ferðum alla mánuði ársins og
1*