Búnaðarrit - 01.01.1903, Síða 12
8
bætfc að tilhlutan eiganda. Þegar 135 faðmar af gaddavír
fást fyrir rúmar 7 krónur eins og auglýst er í síðasta hefti
Búnaðarritsins, þá verður margt gjörlegt, sem áður var ó-
kleift, þarf bara samtökin til að nota stórkaupin. Auk þess
liagar og víða svo til eins og á Hofstöðum að hver önnur
girðing en með gaddavír yrði óbærilega dýr.
Búnaðarfélög Hnappadalssýslu eiga ríflega sjóði, standa
þeir mest í leiguám og eru vextir því háir, en ábyrgðarauki
fyrir félagastjórnirnar. Svo er og nokkur verkfæraeign.
Kostur er það fyrir Eyjalirepp og Miklaholts, að útsvör eru
þar injög létt, sveitarþyngsli rétt eugin. Það sögðu menn
mér. að alls eigi væri fullreynt með Skógarnesið til vöru-
flutninga með flóabátnum, en reisa þyrfti þá geymsluskála
þar, og stæði vart á því hjá bændum, ef von væri á þeirri
miklu samgöngubót. Þar er alt illflytjandi að sér og frá>
hvort heldur á sjó eða landi, og er það eigi lítið mein; en
Icaupstaðarlaus hygð, sem tæki og léti sína þungavöru tvis-
var á árþværi vísast ekki svo illa farin. Löggiltur verzlunarstað-
ur gagnslaus er að Stakkhamri f Miklaholtshreppi. Þar — í
Straumfirði — var kauptún til forua, nú spilt af sandi, eins
og Hraunhöfn gamla, upp af Búðum. Bygðin sjálf hefir
marga kosti, og eg hafði tal og sjón af nógu mörgum til
þess að geta um það borið, að þar eru ekki svo fáir vel
myndarlegir menn, og er heldur til góðs að vona um þær
sveitir, allra helzt ef samgöngurnar batna.
V.
Staður á Ölduhrygg eða Staðastaður er frá fornu fari
hefðarsetur og auðræða, og liafði mig oft langað til að koma
þangað, en blómlegra liefir áður verið umhorfs í Staðarsveit,
sem nú er svo hörmulega komin. Það er eigi ofsögum sagt
af hnignun þeirrar sveitar, sem virðist ágjörast ár frá ári.
Bara í vor sem leið lögðust í eyði í Staðastaðar-prestakalli
tvær bændaeignir, tvær kirkjujarðir og tvær jijóðjarðir, svo
að ekki hallast á, enda mun í sjálfri Staðarsveit áhöld um
tölu jarðeigna í hverjum flokki um sig. Og þegar jarðirnar