Búnaðarrit - 01.01.1903, Page 15
11
aflagt nema að vorinu. Á tímabilinu frá miðjum mai til
Jónsmessu er sumstaðar róið enn, og fiskast aflajafna vel.
Silungsveiði er stunduð í ám og vötnum, sem gnægð er
af i Staðarsveit, og kemur árlega margur málsverðurinn úr
veiðivötnum þessum. Mikið af silungnum gengur úr sjó,
er því feitur og næsta ljúffengur. Sumstaðar eru veiði-
vötnin við túnið, og er þá kostnaðarlítið að stunda veiðina.
Á öðrum stöðum eru þau í uokkurri fjarlægð og þar tel eg
silungsveiðina fremur til ókosta, eins og hún er stunduð.
Hver bóndi hefir sinn netstúf og eyðir alt of miklum tíma
af slættinum til þess að vitja um hina örlitlu útgerð sína.
Yerður þvi silungurinn dýrkeyptur, þó hann að hinuleytinu
sé mikils virði, þegar lítið eða ekkert er til keima fyrir af
matvælum. Víða hagar svo til, að nokkrir bændur geta
veitt í félagi, yrði þá tilkostnaður minni og silungsveiðin
um leið góð hlunnindi.
Æðarvarp er sem stendur að eins á 5 bæjum í sveit-
inni. En æðarfugl fer um afla sveitina og finnast kreiður
og hreiður viðsvegar. Eru því sterkar líkur til að koma
mætti á æðarvörpum mun víðar en er, einkum með því að
gjöra hólma á grynslum í stöðuvötnunum og gjöra svo
hólmana aðgengilega fyrir fuglinn. Annars væri að minni
hyggju mikilsvert, að varp væri sem víðast, svo að sem
flestum væri umhugað um að vernda fugliun. Enn fremur
þyrfti að batna i búi manna, svo að miukaði freistingin til
þess að borða fuglinu áður en hanu kemur úr egginu.
lieki er dálitill, því að oft strjálast spýtur upp á strönd-
ina, þó það sé mjög farið að minka. Eru það góð þægindi
fyrir þá, sem við sjóinn búa, að fá við þennau alla leið
heim til sín.
Motekja er á hverjum bæ í sveitinni og víða afbragðs-
góð. Er það mikill kostur fyrir sveitarbúa og sérlega
mikilsvert fyrir grasræktina, þvi sjálfsagt er að haft verður
alt sauðatað til áburðar, þegar lag er komið á búskapiun.
Hús fyrir menn og skepnur eru víðast hvar í hörmu-
legu ástandi. Auk þess sem húsin eru lág og loftill, eru