Búnaðarrit - 01.01.1903, Page 64
60
23, 24. Equisetum limosum L. (10).
Fergin.
Ferginið er stórvaxnasta elftingartegund landsins, og
getnr orðið 4% fet á hæð eða jafnvel hærri. Það vex
eingöngu á votlendi eða í vatni. Á landi vex það jafnan
strjált og er smávaxið, en í vatni nær það fullum þroska,
og vex þá oftast nær rétt. Meðfram löndunum í djúpum
vötnum vex það oft í þéttum græðum, og smávötn og
tjarnir eru oft alvaxin fergini. I?að er slegið á líkan hátt
og tjarnastörin. Fergin er talið ágætt fóður handa
mjólkurkúm, enda eru nautgripir mjög gráðugir í það bæði
sumar og vetur; vaða þeir oft svo djúpt eftir því, að ekki
sér nema á hausinn og bláhrygginn upp úr vatninu. En
þótt tegund þessi sé allmikils verð bæði til beitar og
vetrarfóðurs, þá kemst hún þó ekki í hálfkvisti við mýr-
elftinguna.
Sýnishornið nr. 23. var tekið 7. júlí í sraásíkjum á
Möðruvallaengjum, en nr. 24 var tekið 22. júlí í Áshildar-
holtsvatni við Sjávarborg á sama stað og sýnishornið nr.
8 og 9.
Efnsamsetning:
í plöntunni vindþurri var: 23. 24.
Vatn................................. 22,58 16,94%
í 100 hlutum þurefnis voru:
Aska....................................lð,94 12,69
Holdgjafasambönd........................16,60 11,58
Eterextrakt............................ 1,96 1,60
Sellulósa.............................. 19,07 22,04
j Pentósanar 7,55 8,28
Önnur holdgjafalaus efni j ()nnur efni 38)88 43)81
100,00 100,00
Holdgjafamagnið a) í þurefninu og b) holdgjafinn út af
fyrir sig skiftist þannig hundraðdeilt eftir samböndum: