Búnaðarrit - 01.01.1903, Síða 96
mjólk, býr nvjög afskekt, ætti hann að íá burðarpeninga
fyrir að flytja rjómann í veg fyrir rjómavagninn eða rjóma-
heatana, sem þó ekki mega vera meiri en svo, að búið
ekki tapi á að hafa hann í félaginu. Á aðalfundi ár hvert
ætti svo að halda uppboð á rjómaflutningnum, þannig að
þeir, sem lægst byðu fengju hann, ef þeir að öðru leyti á-
litast starfinu vaxnir. Jafuframt yrði að ákveða á hvaða
tíma dags rjóminn ætti að vera kominn á búið. Útgjöldin
við flutninginn á rjómauum reiknast svo á sama hátt og
annar kostnaður við búið. Með þessu fyrirkomulagi mundu
margir geta verið með í mjólkurbúunum, sem ekki geta það
nú, vegna þess hvað þeir búa langt í burt. Búin yrðu þá
stærri og rekstrarkostnaðurinn þar af leiðandi minni.
Hinn 1. október byrjaði sjötta náinsskeiðið hér við skól-
ann með 8 námsmeyjum, þar af fór ein af skólanum eftir
8 daga vegna sjúkdóms. Hinar eru: Aðalbjörg Stefáns-
dóttir, Norður-Múlasýslu, Kristjana Jónatansdóttir, Suður-
Þingeyjarsýslu, Guðmunda Guðmundsdóttir, Isafjarðarsýslu,
Ingibjörg Pálsdóttir, Árnessýslu, Guðný Jónsdóttir, Suður-
Múlasýslu, Guðrún Þorsteinsdóttir, Rangárvallasýslu og Sig-
ríður Guðmundsdóttir, Húuavatnssýslu, sem allar eiga að
vera í 5 mánuði eða til 1. marz. Námsgreinarnar eru þær
sömu og að undanförnu. Mjólkurskólinn hefir mjólk úr 34
kúm til meðferðar.
Siðan fyrst i október hefir hér verið mjaltakensla tvis-
var í mánuði. Aðsókniu liefir verið góð, skaði að ekki hefir
verið hægt að taka nema 2—3 í einu vegna þrengsla.
Að endingu má eg ekki gleyma að þakka öllum, er eg
kom til á ferðum mínum í sumar, tyrir gestrisni og góðar
viðtökur.