Búnaðarrit - 01.01.1903, Page 191
187
viðhald á skurðum, notkun vatns úr þeim o. s. frv., sam-
kvæmt lögum 20. des. 1901. Var eg i þeirri ferð 11.—18.
apríl. Frumvarpið var samið og samþykt. Það tekur yfir
3 hreppa sýslunnar, þá hreppana, sem mest hefir verið
unnið i að framræslu, en það eru Sandvíkur-, Eyrarbakka-
og Stokkseyrarhreppar.
Aðalferð mín var um Norðurland írá 22. maí til 3.
sept., alls 15 vikur. Sú ferð var ákveðin og gerð eftir ósk
nokkurra manna og búnaðarfélaga uorðanlands, til þess að
fá framkvæmdar mælingar og áætlanir viðvíkjandi ýmsum
jarðabótum. Ferðin var rækilega auglýst, og skyldu þeir,
er minnar aðstoðar vildu njóta, leggja bréf í veginn fyrir
mig á bréfhirðingarstöðum á aðalpóstleiðinni. í norðurleið
kom eg allvíða við i efri hluta Borgarfjarðar- og Mýrasýslu
og gaf npplýsingar um áveitu og gjörði mælingar.
í Húnavatnssýslu varð viðstaðan stutt; olli þvi óhag-
stæð veðrátta og þingkosningar. Mælingar gerði eg þar
engar, svo teljandi sé, gaf að eins bendingar um áveitu og
túnbætur á nokkrum bæjum, er óskað var eftir, þar á meðal
i Þinginu og hjá þeim Brynjólfi Bjarnasyni í JÞverárdal og
Stefáni Eiríkssyni á Refstöðum. Búnaðarfélag Engihlíðar-
hrepps hélt búnaðarfund að Holtastöðum 12. júni og mætti
eg þar. Þar var aðallega rætt um rjómabússtofnun i
Langadalnum.
Á Æsustöðuin í Langadal athugaði eg og gerði áætlun
um kostnað við að gera garð til varnar skemdum á túni
og engi af völdum Blöudu. Kostnaðurinn við það verk á-
ætlaður um 800 kr. Páimi Sigurðsson, sem þar býr, lót í
ljósi eindreginn áhuga á þvi að framkvæma verkið, þrátt
fyrir marga erfiðleika.
í Skagafjaröarsýsln kom eg 14. júni og dvaldi þar i
sýslunni til 8. júli. Hallamælingar til vatnsveitinga og
framræslu gerði eg fyrst og fremst í Staðar- og Víkurmýr-
um; en með því eg hefi i hyggju að minnast á þessar
mýrar annarstaðar i „Búnaðarritinu11, þá verður þvi slept hér.
Mælingar framkvæmdi eg einnig á Sjávarborg, Geldinga-