Búnaðarrit - 01.01.1903, Síða 203
199
Kjartan Einarsson, prófastur, í Holti, Kjartan Helgason,
prófastur, í Hvammi, Magnús Audrésson, prófastur, á Gils-
bakka, Magnús Bjarnason, prestur, á Prestbakka, Samúel
Eggertsson, búfræðingur, á Stökkum, Sigurður P. Sivertsen,
prestur, á Hofi, Sigurður Stefánsson, prestur, i Yigur,
Sveinbjörn Ólafsson, búfræðingur, í Kaldaðarnesi, Vilhjálm-
ur Briem, prestur, á Staðastað, Þorsteiuu Jónsson, læknir, í
Y estm an n aeyjum.
Eftirfarandi skýrsla er bygð á frásögn þessara manna
með litlum viðaulcum úr dagblöðunum.
Tíðarfar:
Vetur frá nýári var hér sunnanlands kulda- og frosta-
samari en venja er til. Snjóþyngsli voru þó ekki mikil og
hagar þess vegna oft góðir. Tíðarfar mjög líkt í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu og Gullbringu- og Kjósarsýslu, nema
frostharðara i uppsveitunum en niður um.
Á Snæfellsnesi var veturinn talinn góður, 'sömuleiðis í
Dölunum, en þar var þó frostharðara og jörð því nær auð
allan veturinn.
Á VestfjörÖHm : Barðastrandar-, ísafjarðar- og Stranda-
sýslu var veturinn yfirleitt harður með grimmu frosti og
umhleypingum; kom þó alllangur góðviðrakafli seinni part
janúar og fyrri liluta marz. Hafísiuu rak þar að landi og
inn á firði kringum þann 7. febrúar og hélst á vesturfjörð-
um til sumarmála, en við Strandir þangað lil 1. júní ; fór
þó ekki til fulls af Hrútafirði fyr en 25. júní. Voru þá
liðnir 137 dagar frá fyrstu komu hans.
Á Norðurlandi var veturinn umhleypingasamur fram
undir páska, stormar, ýmist norðan með miklu frosti eða
sunnan ineð þýðu, urðu því snjóar litlir, en kuldar miklir.
Eyjafjörð lagði út uudir Höfða á Þorra. Hafís sást úr
Pljótum á nýársdag. Eyrst í febrúar kom kafís á Eyja-