Búnaðarrit - 01.01.1903, Page 226
222
Burraeister & Wain og hefir hann kent það út frá sér síð-
an hann kora aftur.
Samkvæmt bendingu búnaðarþingsins hefir félagið keypt
sláttuvél (Deerings), til að reyna hvort smiðir hér treystust
eigi til að breyta henni svo að hún geti komið til almennra
nota hér á landi. Þeir járnsmiðirnir, Sigurður Jónsson og
Gísli Finnsson hafa tekið þetta að sér og eru á leiðinni með
nokkra breytingu. Vélin var reynd bæði í fyrra og í ár,
slátturinn gekk all vel nú í sumar og aðalgallinn vísast sá,
að vélin er of þung fyrir einn hest.
Fólagið hefir stutt að útbreiðslu gaddavírsgirðinga.
Björn Bjarnarson búfræðingur i Gröf vakti máls á því á
aðalfundi fólagsins 1901 og síðan tók Þorsteinn Tómasson
járnsmiður að sér að hafa á boðstólum gaddavír og járn-
stólpa, sem festa.st skyldu í steina. A ársfundi 1902 skýrði
Eggert Briem, óðalsbóndi í Viðey, frá því, að hann hefði
sett þar upp gaddavírsgirðingu á galvaníseruðum járnteinum,
stungnum í jörðu, og væri hún hentug og ódýr. Eélagsstjórn-
in ákvað síðar, að fá annanhvorn þeirra Sigfús Eyinunds-
son, bóksala eða Þorstein Tómassou til að verzla i stór-
kaupum með gaddavír og járnteina og var tilboði Sigiúsar
Eymundssonar tekið. Eftir það hefir gaddavir og teinar
fengist hjá báðum þessum möunum.
Búnaðarfélagið hefir st.utt að þvi að plægingar gætu
útbreiðst héi- á landi, meðal annars með því að panta nokkra
plóga hjá skólastjóra Torfa Bjarnasyui í Ólafsdal, sem hann
hefir smíðað með nýju lagi, endurbætt eldri plóginn. Þessir
plógar hafa svo selst hér og reynst ágætlega. — Eélagið
hefir styrkt menn til utanfarar sem mcðal annars hafa farið
til að læra plægingar. Heitið að styrkja búnaðarfélög til
að koma á hjá sór inyndarlegum plægingum, er miðuðu að
þvi að menn og hestar gæta æfst við það verk. JÞessar
styrkveitingar tilheyra þessu ári og sömuleiðis styrkur sem
Jóni Jóuatanssyni bústjóra i Brautarholti var veittur til að
taka pilta til að læra plægingu.
Stærri vatnsveitingafyrirtæki hefir félagið stutt með