Búnaðarrit - 01.01.1903, Page 258
254
c. Að haldið sé próf við endalok fyrra námsskeiðsins að
viðstöddum tveim prófdómendum, er stjórn Búnaðarfé-
lagsins nefnir til.
d. Að mjólkurmeðferðarkennarinn sé skyldur til að kenna
námspiltum búnaðarskólans og mjaltakonum skólabús-
ins mjaltir án endurgjalds og að hann sjái um með
fullri röggsemi að mjaltir fari fram með góðu lagi og
að nauðsynlegur þrifnaður með mjólkina í fjósinu sé
viðhafður, enda stuðli skólabúið að því, meðal annars
með þvi að ieggja mjaltakouum betri mjaltaföt en að
undanförnu.
e. Að Búnaðarfélag Islands kaupi af skólabúinu alt það
smjör, sem skólabúið vill selja og sem framleitt er við
mjólkurmeðferðarkensluna, úr mjólk þeirri, sem skólabú-
ið leggur til, á tímabilinu frá 1. jan. til 15. júní ár hvert
fyrir 68 aura pundið, flutt i Borgarnes kostnaðarJaust,
og að skóJabúið sé laust við að Jeggja til umbúðir, á-
höld, eldsneyti, Jjós og kallr til mjólkurmeðferðarkensl-
unnar.
En aftur á móti tekur skólabúið á sig að kostnað-
arlausu fyrir Búnaðarfólagið að fLytja. úr Borgarnesi,
kol, umbúðir og annað, sem þarf til smjörgerðarinnar.
f. Að stjórn Búnaðaríélags Islands sjái um, að smjörgerð-
in verði sem bezt af liendi leyst og að bætt sé úr því
eftir ýtrasta megni, sem ábótavant hefur verið í því efni.
g. Að stjórn Búnaðarfélagsins sé heimilt að veita náms-
stúlkum úr íjarlægum héruðum nokliurn ferðastyrlr, alt
að 30 kr. hverri, er þó megi ekki fara fram úr 160 lu\
á slrólaárinu.
h. Að sltólabúinu á Hvanneyri sé heimilt að nota smjör-
gerðarverkíæri mjólkurskólans að sumrinu, en sldli þeim
jafngóðum og sömuleiðis nota íbúðarherbergi námsstúlkn-
anna að sumrinu, þó án sængurfata.
i. Að skólabúið talfi við til dvalar, eftir því sem kring-
umstæður leyfa, aðlcomnum mjaltanemendum og selji
þeim hús og fæði fyrir hæfilegt verð.