Búnaðarrit - 01.01.1903, Side 286
282
sandinum er blandað saman fyrst og grjótið eða mölin sett
saman við 4 eftir. Blöndunin fer fram 4 fjalagólfi, og er
gott að lágur karmur sé í kring (flatur kassi), til þess að
ekkert fari út fyrir. Sementið er mælt í kollu og sandur-
inn í öðru (stærra) íláti; er þægilegast að liafa það botn-
laust, setja það 4 fjalirnar, moka sandinum upp í og taka
ilátið upp; liggur sandhrúgan þá eftir. Sé sandurinn ekki
alveg við hendina, og sé honum t. d. ekið í hjólbörum inn
á blöndunarborðið, má auðvitað nota sjálfar hjólbörurnar
sem mál, þegar einu sinni er búið að mæla hvað þær taka.
Sé sandurinn þur, má fyrst blanda sementinu þurru
saman við hann. Sandurinn er lagður í jafnt lag, ca. 3
þuml. þykt, á gólfið; sementinu er svo dreift jafnt þar ofan
á. . Síðan er því mokað saman með skóflum; bezt er að
tveir menn séu við það, sinn hvoru megin, og hvolfa þeir
alt af af skóflunni, svo að það, sem áður var undir, nú
verður ofan á. Þegar þeir eru búnir að fara einu sinni
gegnum allan sandinn, sópa þeir öllu saman í aflatigan garð
á miðju gólfinu og byrja aftur á hinum endanum o. s. frv.
Vanalega er talið að nóg sé blandað, þegar þeir eru búuir
að moka sandinum til þrisvar fram og þrisvar til baka,
altsvo 6 sinnum. Sjá má hvort blaudan sé góð með því
að stinga skóflunni niður í hana, svo að sléttur flötur komi
fram; hann verður þá að vera alveg jafnlitur, svo aðhvergi
só hægt að greina semeutið frá saudinum; sé það hægt,
verður að blanda betur, því gæði steypunnar eru mjög
uttdir því komin, að blöndnnin só vel gerð. Þar á eftir er
vatn sett saman við, og er bezt að liella því úr garðkönnu
með goshettu á túðuuni. Vatnið á að vera svo lítið sem
eftir atvikum er hægt að komast af með, því þá verður
stej'pan sterkari og þóttari; þó rná það ekki vera of litið,
þvi sementið verður að hafa nóg vatn til að binda sig við.
Meðan vatuinu er helt á og eftir að það er búið, skal hræra
í steinlíminu með skóflu (moka þvi til), unz það er alt
jafnvott.
Só sandurinn til muna blautur, er betra að hræra se-