Búnaðarrit - 01.08.1915, Page 89
BÚNAÐARRIT
247
Námsskeið þessi hafa sótt 800—900 manns, og
fluttir hafa verið á þeim 195 fyrirlestrar.
Á námsskeiðunum og fundum hefi eg flutt 38
fyrirlestra alls.
Auk þessa, sem hér er nefnt, hefi eg á árinu skrifað
450 bréf, gert nokkrar skýrslur og áætlanir og skrifað
fáeinar greinar í blöð og timarit.
Reykjavík (i. jan. 1915.
Sigurður Sigurðsson.
Tíðarfar.
Vetur frá nýjári. Yeðráttufar nokkuð líkt um land
alt. Um nýjárið voru talsverð snjóalög, en um þrett-
ándann brá til hlýju og blíðviðra, er héldust um þriggja
vikna t.íma. Spiltist þá tíðin og gerði hagleysur. Eftir
það varð veturinn umhleypingasamur og gjafafrekur.
Það er einna bezt látið af veðráttufarinu við ísafjarðar-
djúp. Þar var jörð lengsfum næg fyrir fé og hross.
Hafís rak inn á Djúpið um miðjan veturinn, en bráð-
lega hlýnaði aftur, og gekk ísinn frá.
Vorið var eitt hið allra bágasta um land alt. Frá
miðjum apríl til maíloka var einhver hin allra versta
ótíð, sem menn muna um það leyti árs. Skiftist á krapi,
stórrigningar og hörku-norðanveður. Um mánaðamótin
maí og júni batnaði tíðin og jörð fór að grænka, en
ekki voru komnir kúahagar á Suðurlandi fyr en um
Jónsmessu. í Birtingaholti var kúm gefið síðast 25. júní.