Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 17
SKÝRSLA B Ú N At)A R MÁLASTJ Ó R A 11
önnur af tveimur stöðvum í Noregi, þar sem nautasæð’i
er geymt djúpfryst við — 196°C, en köfnunarefni (N2) í
fljótandi ástandi er notað við frystingu og geymslu. —
Oddmund Filseth dvaldist hér á landi 7.—15. marz. Á
þessum tíma heimsótti hann þær fjórar sæðingarstöðvar,
sem í landinu eru (að Lundi, Hvanneyri, Laugardælum
og Blönduósi) og auk þess Tilraunastöðina á Keldum
og Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi. Þá ræddi hann við
búnaðarmálastjóra og ýmsa starfsmenn félagsins og flutti
erindi með skuggamyndum um tilhögun og þróun þess-
ara mála í Noregi á ráðunautafundi, sem efnt var til um
sama leyti. Hr. Filseth samdi skýrslu til félagsins um för
sína, og var hún þýdd og send búnaðarsamböndum,
ráðunautum og fleiri aðilum í júní. 1 skýrslu sérfræð-
ingsins kom m. a. fram, að hann telur nautgripasæðingar
tiltölulega vel á veg komnar liér á landi, en þó miklar
líkur til, að notkun djúpfrysts sæðis í stað fersks yrði hag-
kvæmari leið, og orkaði þá ekki tvímælis, að ein slík
stöð ætti að nægja fyrir allt landið.
1 framhaldi af þessum atliugunum og í samræmi við
ályktun Búnaðarþings 1967 ákvað stjórn Búnaðarfélags
íslands að óska eftir fjárveitingu á fjárlögum 1968 til
að koma upp djúpfrystingarstöð og jafnframt að efna
til fundar húnaðarsambanda um málið, er þau hefðu
kynnt sér skýrslu sérfræðingsins. Var fundurinn haldinn
12. september í Bændahöllinni. Sátu liann 36 manns.
Meðal þeirra voru fulltrúar allra búnaðarsambanda og
búfjárræktarstöðva nema Búnaðarsambands Norður-
Þingeyinga. Enn fremur sátu fundinn fulltrúar naut-
griparæktarsambanda. Af lxálfu Búnaðarfélags Islands
voru á fundinum stjórn félagsins, en formaður þess stjórn-
aði honum, búnaðarmálastjóri, sem flutti ávarp, ráðu-
nautar félagsins í nautgriparækt og sauðfjárrækt og rit-
stjóri Freys. Framsögu hafði ólafur E. Stefánsson, naut-
griparæktarráðunautur. Eftir nokkrar umræður sam-
þykkti fundurinn meðal annars eftirfarandi: