Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 28
22
BUNAÐAR KIT
mikla grænfóðri á þeim tíraa árs, sem öll útjörð er að
sölna.
G. Slanley Brown, yfirmaður Evrópudeildar hagfræði-
rannsóknarstofnunar landbúnaðarráðuneytisins í Wasli-
ington D. C., heimsótti Búnaðarfélag Islands í nóvem-
ber til þess að kynnast félagslegri uppbyggingu íslenzks
landbúnaðar og stefnu okkar í landbúnaðarmálum.
Peyton Johnson, litbreiðslustjóri Norður-Ameríku-
deildar Matvæla- og landbúnaðarstofnunarinnar (FAO)
í Róm, kom hingað 1. des. og dvaldist liér tvo daga til
þess að kynna sér notkun jarðbita við gróðurhúsafram-
leiðslu o. fl.
Sláturfélag SuSurlands bauð 7 landbúnaðarfrömuðum
frá Færeyjum liingað til lands í byrjun október til þess
að kynna fyrir þeim liina fjölþættu starfsemi sína og
sérstaklega, bvernig sláturhúsin væru byggð og starf-
rækt bér á landi. Það var Búnaðarfélagi Islands mikil
ánægja að bjóða þessum ágætu Færeyingum að vera gest-
ir félagsins einn dag og kynna þeim starfsemi þess. —
Nöfn og beimilisföng þessarra góðu gesta fara liér á
eftir:
Cbr. Djurlnius, lögmaður og lögþingsmaður, fer með mál
landbúnaðarins á lögþingi Færeyinga.
Danjal Danjalsen, kóngsbóndi, Velbastad, forinaður
jarðráðs.
'l’omas Joensen og frú, lögþingsmaður og form. Búnað-
arfélags Færeyja.
Joannes Patursson, kóngsbóndi, Kirkjubæ, varaform.
Búnaðarfélags Færeyja.
Vilhjálmur Patursson, starfsmaður og stjórnaraðili í jarð-
ráði.
Karsten Rasmussen, skrifstofustjóri jarðráðs, Þórsböfn.
Oliver Aaberg, forstjóri sölufélags grænmetis, Þórsböfn.