Búnaðarrit - 01.01.1968, Síða 60
54
BUNAÐARRIT
ég hefi jafnan gert grein fyrir í starfsskýrslum mínum. 1
fyrsta lagi hefi ég aSstoðað og leiðbeint þeim garðyrkju-
bændum, sem þess hafa óskað, og í öðru lagi hefi ég
verið hjálplegur því áhugafólki úti á landsbyggðinni, sem
fæst við garðrækt í einhverri mynd. Þessu starfi fylgja
jafnan mikil ferðalög, einkum fyrri hluta sumars. 1 þetta
sinn ferðaðist ég þó með minna móti, eða samtals 80
daga. Allt frá því að ég hóf að starfa að garðyrkjuleið-
beiningum á vegum Búnaðarfélagsins, hefi ég liaft það
fyrir venju að heimsækja garðyrkjubýli, eftir því sem
hægt hefur verið að koma því við á aðalannatíma þeirra,
sem segja má, að sé allt frá byrjun marz og fram til októ-
berloka. Á ferðalögum þessum liefi ég kynnt mér ástand
og horfur ræktunarinnar og gefið mér tíma til viðræðna
við framleiðendur um þau mál, sem efst eru á baugi
liverju sinni viðvíkjandi því, sem ræktað er. Garðyrkju-
bændur hafa löngum látið í Ijósi áhuga fyrir þannig
heimsóknum, og óskað þess eindregið, að þær væru með
sem reglulegustu millibili, helzt einu sinni í mánuði.
Þeirri bón hef ég ekki getað sinnt vegna margvíslegra
annarra verkefna, enda yrði þá um stöðug ferðalög að
ræða, sem ég ímynda mér, að fyrr eða síðar komi til með
að draga úr starfslöngun hjá flestum. Nú er það svo á
þessum vettvangi, eins og einnig mun vera á öðrum svið-
um, að ekki virðist áhuginn jafn hjá öllum garðyrkju-
bændum á aðstoð og leiðbeiningum garðyrkjuráðunautar-
ins. Hefur því verið lögð megináherzla á að gera þeim
betri skil, sem þess hafa óskað og talið sig liafa gagn af,
og hinir látnir óáreittir.
Ferðalög á árinu í sambandi við gróðrarstöðvar voru
sem hér segir: 1 janúar var ég í Mosfellssveit í einn dag
og í Hveragerði í þrjá daga. 1 febrúar varði ég einum
degi á nokkrum gróðrarstöðvum í Mosfellssveit, m. a. í
sambandi við mat á innfluttum rósum, sem að nokkru
höfðu skemmzt í flutningi. 1 marz var ég tvo daga á
gróðrarstöðvum í nærliggjandi sveitum Reykjavíkur.