Búnaðarrit - 01.01.1968, Síða 69
SKÝIÍSLUR STA RFSMANNA
63
trúi þess í nautgriparæktardeildinni. Ymislegt nytsam-
legt kom fram á fundunum, m. a. í sambandi við stefn-
ur og aðferðir við kynbætur nautgripa. Á sviði fóður-
fræði var merkust viðamikil skýrsla, sem prófessor K.
Breirem frá Noregi hafði tekið saman um rannsóknir á
fóðurþörf mjólkurkvia, og verður bún væntanlega gefin
vit síðar. Ráðstefna þessi var fjölmenn, og sóttu hana
m. a. nokkrir íslenzkir búfjárræktarmenn, sem búsettir
eru erlendis um þessar mundir. Eftir ráðstefnuna var
búnaðarbáskólinn í Ási beimsóttur og farið í tveggja
daga ferðalag, sem var bið fróðlegasta. Var m. a. komið
að Stensby við Hamar og nautastöðin þar skoðuð undir
leiðsögn Oddmunds Filsetlis, sem áður er getið.
önnur störf. Eins og getið er í síðustu starfsskýrslu,
átti ég sæti í f jögurra manna nefnd, er falið var að endur-
skoða reglugerðir um útbúnað sláturhúsa, kjötfrystihúsa
og kjötverkunarstöðva, heilbrigðisskoðun á sláturafurð-
um, kjötmat o. fl. Nefnd þessi skilaði áliti 26. júlí. Eru
líkur fyrir því, að reglugerðir þessar verði staðfestar og
komi til framkvæmda á árinu 1968. Er ástæða fyrir bænd-
ur að kynna sér ýtarlega liinar nýju kjötmatsreglur, þeg-
ar reglugerð um það tekur gildi. Meiri munur er nú gerð-
ur á liinum ýmsu flokkum kjöts eftir gæðum en áður,
og ætli það að stuðla að betri framleiðslu og skapa
samræmi við stefnur í búfjárrækt, svo framarlega sem
tekið verður tillit til gæðaflokkunar við verðlagningu,
sem er brýn nauðsyn.
Um inánaðamótin okt.— nóv. var ég ásamt þeinv Páli
A. Pálssyni, yfirdýralækni, og Páli Ásgeiri Tryggvasyni,
deildarstjóra í Stjórnarráðinu, skipaður í nefnd til þess
að atlvuga og leggja franv tillögur um framtíðartilliögun
á búrekstri á Bessastöðum o. fl. Nefndin lauk störfum I
árslok, og lvefur álitsgerð liennar verið send landbúnaðar-
ráðuneytinu, sem skipaði nefndina.
Ég var áfram ritari Tilraunaráðs landbvinaðarins og
búfjárræktarnefndar þess. Þá átti ég sæti í stjórn Bænda-