Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 70
64
BÚNAÐARRIT
liallarinnar, kosinn af Búnaðarþingi. Hinn 19. október
skipaSi stjórn BúnaSarfélags Islands í sýningarnefndir
vegna landbúnaðarsýningar 1968. Er ég í búfjársýningar-
nefnd ásamt þremur öðrum ráðunautum félagsins í bú-
fjárrækt, þeini Árna G. Péturssyni, Gunnari Bjarnasyni
og Þorkeli Bjarnasyni. Hinn 9. júní skipaði menntamála-
ráðuneytið mig samkvæmt tilnefningu stjórnar Búnaðar-
félags Islands varamann búnaðarmálastjóra í náttúru-
verndarráð til loka yfirstandandi starfstímabils ráðsins,
sem lýkur 28. maí 1969. Um störf kjarnfóðurnefndar vís-
ast til skýrslu Gísla Ivristjánssonar, ritstjóra.
II. Nautgriparæktin 1967
Fjöldi nautgripa. Að undanförnu hefur fjöldi búfjár
verið miðaður við áramót samkvæmt framtölum. Með bú-
fjárræktarlögunum frá 1965 og reglugerð við þau frá
1967 er ráð fyrir því gert, að Hagstofa Islands byggi á
skýrslum forðagæzlumanna um tölu búfjár við haust-
skoðun, sem lokið skal fyrir 1. nóvember, og kom þetta
fyrst til framkvæmda liaustið 1966. Má því búast við
lítils liáttar ósamræmi við samanburð á fjölda naut-
gripa árið, sem breytingin er gerð, þar sem talning fer
ekki frarn á sama tíma, en ekki ætti þó að skeika miklu.
Þá befur flokkun nautgripa eftir kyni og aldri verið
breytt. Eru nú 4 flokkar: kýr, kvígur 1% ;írs og eldri,
geldneyti eldri en 6 mánaða og kálfar yngri en 6 mánaða,
en áður voru kýr og kelfdar kvígur reiknaðar sameigin-
lega. Fjöldi nautgripa í landinu var við haustskoðun 1966
alls 54530, þar af 38918 kýr, 5181 kvíga, 4995 geldneyti
og naut og 5436 kálfar. Hefur nautgripum fækkað um
4994 frá ársbyrjun eða um 8,4%, og eru ástæður lil þeirr-
ar fækkunar raklar í fyrri starfsskýrslu.
Mjólkurfrainleiöslan. Innvegin mjólk í mjólkurbúum
nam árið 1967 alls 101.698.061 kg og hafði aukizt um
0,22% frá fyrra ári. Innvegið mjólkurmagn skiptist þann-
ig milli mjólkurbúanna: