Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 88
82
BUNAÐAR RIT
þ. m. 14. september var farið í réttir. 27—30. september
og 23.—-24. október xinnið við rannsóknastörf, fjárrag og
slátrun á Hesti. 2. desember ferð austur fyrir Fjall með
Peyton Johnson, blaðafulltrúa lijá F A O. 11.—13.
desember lieimsótt stofnræktarbú sunnan Skarðsheiðar,
sauðfjársæðingastöð að Hvanneyri og ásamt Sveini Hall-
grímssyni og Hjalta Gestssyni stofnræktarbúið að Hrafn-
kelsstöðum, og stjórn Sf. Skeiðalirepps vegna væntanlegra
afkvæmarannsókna. Þá hef ég átt viðræður við marga
erlenda sérfræðinga í sambandi við breyttar aðstæður á
innflutningi á fóðurvörum, og látið í Ijósi óskir sauðfjár-
ræktar varðandi fóðurblöndur, einnig rætt þau mál mik-
ið við innlenda aðila. í liaust dvaldi liér um 3ja vikna
skeið danskur námsmaður, Jakob Hoff Jörgensen, lil að
kynna sér ráðunautastarfsemi okkar í sauðf járrækt. Hann
var með mér og Sveini allan tímann, bæði á skrifstofu og
í sýningarferðum. Ferðadagar urðu alls 84 á árinu, að
meðtöldum sýningardögum og utanlandsferð í þágu
starfsins.
Skrifstofan
Þar voru störf með svipuðum hætti og síðastliðið ár,
bréfaskriftir, persónulegar viðræður og símtöl. Unnar
greinargerðir um ríkisframlög vegna stofnræktarbúa,
sæðingastöðvar og geitfjárræktar. Ég skrifaði auk starfs-
skýrslu tvær greinar í 80. árgang Búnaðarritsins, um
héraðssýningar á sauðfé 1965 og aðra um hrútasýningar
1966. Auk þess grein um sauðfjárrækt í Handbók bænda
1968, leiðbeiningar um notkun grasköggla við fóðrun
sauðfjár, fréttatilkynningar fyrir blöð og útvarp og smá-
grein um stöðu og framtíðarviðhorf íslenzkrar sauðfjár-
ræktar fyrir mánaðarrit sænsku sauðfjárræktarfélaganna,
Fárskötsel. Vann til Ijósprentunar verðlaunaspjöld liér-
aðssýninga og gerði tillögur að fóðurblöndum fyrir sauð-
fé lijá smærri blöndunaraðilum.