Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 101
SKÝRSLU R STARFSMANNA 95
framleiðslugreinar, því að án slíkra samtaka verður öll
umbótaviðleitni í molum.
Starfsemi mín á sl. ári fyrir þessar búgreinar hefur
aðallega legið í munnlegum leiðbeiningum við marga
bændur og að svara bréfum. Þá lief ég farið allmargar
ferðir til Reykjavíkur til að leiðbeina fóðurblöndunar-
firmum og innflytjendum kjarnfóðurs.
2. Hestaútflutningur
Hestaútflutningur var með minna móti og verðlag frem-
ur lágt miðað við söluverð á hrossum innanlands. Verð-
lag íslenzkra liesta hefur þó ekki lækkað erlendis, lield-
ur er þetta að nokkru leyti afleiðing af dýrtíð hér í landi.
Nú er talið, að alls séu lifandi um 6000 íslenzk liross í 6
löndum Vestur-Evrópu, sem liross liafa verið seld til
síðastliðinn áratug, eða þessum löndum: Þýzkalandi,
Hollandi, Sviss, Austurríki, Danmörku og Noregi. Þetta
gerir um sjötta hluta af lirossafjöldanum í landinu sjálfu.
Agnar Tryggvason, framkvæmdastjóri búvörudeildar SlS,
befur unnið ötullega að því að liindra, að þessi útflutn-
ingur félli alveg saman, en það liafa verið gerð ýmis mis-
tök hér í þessum málum. Sambandið er nxi að skipu-
leggja nýja sókn í þessum útflutningsmálum, og lief ég
trú á, að því muni takast að koma þessari verzlun aftur
á góðan rekspöl, ef ekki verða lagðar óþarfar hindranir
á leiðina.
Ég fór aftur á sl. ári sem gestur til að dæma á lands-
móti eigenda íslenzkra liesta á meginlandinu, en mótið
var nú lialdið í Aegidienberg 4. og 5. nóvember. Ég út-
hlutaði silfursvipunni, ráðherraverðlaununum fyrir
bezta töltreið, sem er orðinn fastur árlegur þáttur á þess-
um mótum, og þykir mikið til þeirra verðlauna og viður-
kenningar koma. Hlaut verðlaunin að þessu sinni ungur
maður, Podlec að nafni, sonur þess manns, sem selt hef-
ur flesta íslenzka liesta úr sölustöð sinni skammt frá