Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 109
SKYRSLUR STARFSMANNA
103
fóðurs lief ég að þessum málum unnið áfram, enda er
það verksvið nátengt fóðurbirgðaeftirlitinu, sem ég ann-
ast.
Sívaxandi kröfur um auknar afurðir af liverri skepnu
gera jafnt vaxandi kröfur um aukna notkun kjarnfóðurs,
því að takmörk eru því sett, hve mikið gróffóður búféð
getur nýtt. Auknar afurðir nautpenings, frá því er nú
gerist, niunu eflaust kref jast viðbótarfóðurs, sem er kjarn-
fóður og kraftfóður að mestu. Innflutningur þeirrar vöru
og svo gjörnýting kraftfóðus og fóðurbætis, sem hér er á
markaði, af innlendri framleiðslu, er því mál málanna
í vaxandi afurðakröfum. Hagkvæm notkun þessara efna
er því hagsmunamál.
Það hagsmunamál varðar ekki bændastéttina eina,
heldur alþjóð. Nefnd sú, er kjörin var haustið 1966, til
áframhaldandi athugana viðvíkjandi innflutningi fóðurs
og dreifingu þess innanlands, með niitíma sniði, liefur
unnið að málinu og hélt 6 fundi á árinu. Var ráðinn til
rannsókna á þessum efnum Kjartan Jóhannsson, sem er
verkfræðingur og hagfræðingur að menntun. Hefur liann
að undanförnu unnið að hliðstæðum verkefnum á vegum
olíitfélaganna.
1 þessum rannsóknum hef ég unnið með Kjartani, eftir
því sem ástæður hafa verið til. Til þess að móta líkleg
viðhorf í fjárfestingarmálum varðandi sílóbyggingar og
annað, er til þessa heyrir, var fenginn verkfræðingur,
Lennart Werin frá Landsbygdens Byggnadsförening í
Málmey, en stofnun þessi hefur mikla reynslu í sílóbygg-
ingum um áratugi og hefur að þeim unnið í ýmsum
löndum.
Hefur þetta hlutverk tekið nokkurn tíma, og er rann-
sóknarstarfið komið vel á veg. Werin dvaldi hér um
viku tíma og skoðaði aðstöðu á ýmsum stöðum og lét
síðar í té skýrslu um komu sína og svo áætlanir miðaðar
við ýmiss konar fyrirkomulag athafna.