Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 120
114
BUNAÐARRIT
Nokkrar aðrar veiðiferð’ir fór ég á árinu, þar sem dýr
voru unnin, en ég tel ekki ástæðu til að geta þeirra
sérstaklega.
Eyðing svartbaks
Þær framkvæmdir, sem gerðar voru á árinu í eyðingu
svartbaks, voru mest í tilraunaskyni til að fá sem bezta
reynslu í því, hvaða aðgerðir væra líklegastar til árang-
urs, ef til frekari eyðingaraðgerða kæmi. Fjárframlag
liins opinbera var mjög takmarkað til þessara mála, en
allar aðgerðir í eyðingu svartbaks hljóta að vera háðar
því fjármagni, sem til þeirra er veitt. Á vegum starfsemi
minnar voru nokkur svartbaksvörp gengin og ungum eytt,
egg vora einnig gerð ófrjó, og virtist fuglinn liggja áfram
á þeim, án þess að bæta við nýjum eggjum. Þá voru gerð-
ar víðtækari tilraunir með svefnlyf en áður, og er ekki
annað að sjá, en með notkun svefnlyfja sé liægt að eyða
miklum fjölda svartbaks á vissum árstímum, án þess að
öðram fuglategundum stafi hætta af.
Á Rangárvöllum, við Hellu og Djúpadal, var sett svefn-
lyf í úrgang frá sláturhúsunum, og á þann hátt unnir
760 svartbakar og 130 hrafnar í átta ferðum að þessum
stöðum. Það skal tekið fram, að engin önnur fuglateg-
und var sjáanleg við æti þetta eða fannst sofandi af
völdum þessarar aðgerðar, en rottur munu eitthvað hafa
gengið þama um.
1 starfsskýrslu minni sl. ár voru birtar tölur yfir unn-
inn svartbak, frá því lögin um eyðingu lians tóku gildi
í maí 1965 til ársloka 1966, alls 7135 fugla. 1 ár bárast
nokkrar tölur til viðbótar frá þessu tímabili, og hækkar
því talan í 8684 unna svartbaka. Kostnaður við eyðingu
þeirra varð kr. 132.640.00.
Eftirleiðis mun yfirlit um eyðingu svartbaks miðast við
sama ár og eyðingu refa og minka.