Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 130
124
BÚNAÐARRIT
Var óskað eftir, að hver nefnd gæfi skýrslu fyrir lok árs-
ins um ástand gróðurlenda í sínu umdæmi, landgræðslu-
framkvæmdir til þessa, livaða aðgerðir nefndin teldi brýn-
astar á næstu árum o. fl. Eru skýrslur þessar nú óðum að
berast.
1 landgræðslulögunum er kveðið svo á, að innan 5 ára
frá gildistöku laganna skuli Landgræðslan bafa látið gera
yfirlit um landskemmdir á landinu öllu og samið áætlun
um, livernig belzt megi bæta þær, og í livaða röð. Til
grundvallar við samningu slíkrar áætlunar verður unnt
að leggja gróðurkort Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
ins, að því er snertir hálendið, en skýrslur nefndanna fyr-
ir láglendið.
1 allar nefndirnar bafa valizt áliugasamir og ágætir
menn, sem geta orðið að ómetanlegu liði í landgræðslu-
starfinu. Má geta þess, að í nokkrum sýslum hafa þær
fengið samþykki fyrir fjárveitingum úr sýslusjóði, sem
eiga að stuðla að því, að unnt verði að flýta úrvinnslu
gróðurrannsókna og útreikningum á beitarþoli.
3. Þátttaka félagasamtaka í landgræðslu
Augljóst er, að til þess að landgræðslulögin nái tilgangi
sínum, verður allur almenningur að skilja nauðsyn þeirra
og standa að framkvæmd þeirra, beint og óbeint. Þar
sem félagsstarfsemi er orðin umfangsmikil í landinu, þótti
liins vegar ekki ráðlegt að stofna til nýrra félagssamtaka
um landgræðslu, og varð að ráði að leita til Ungmenna-
félagsbreyfingarinnar um liðsinni, en sú starfsemi er sem
kunnugt er fjölmenn og vel skipulögð um land allt.
Árangur þessarar viðleitni varð sá, að í samvinnu við
forystumenn Ungmennasambandsins Skarphéðins á Suð-
urlandi var til reynslu efnt til bópferðar 30 manna og
kvenna á Kjöl til landgræðslustarfa. Vann hópurinn þar
að sáningu og áburðardreifingu í tvo daga og sáði í 30—
40 ba. Um ferðina þarf ekki að fjölyrða, svo mikið hefur
verið um hana ritað og rætt. Frá uppgræðslusjónarmiði