Búnaðarrit - 01.01.1968, Blaðsíða 133
BÚNAÐARÞING
127
arfélags lireppsins um árabil. Auk þess gegndi hann ýms-
um fulltrúastörfum fyrir sveit sína, sýslu og kaupfélag.
Benedikt II. Líndal var góðum gáfum gæddur. Hafði
sjálfstæðar skoðanir í liverju máli, vel máli farinn, djarf-
mæltur og ódeigur að lialda fram málstað sínum, jafnvel
þó liann stæði einn á móti mörgum. Slíkur var liann
málafylgjumaður. Hann var glaður og reifur á mann-
fundum og í hvers konar fagnaði, og höfðingi lieim að
sækja. Hann var fjálmálamaður meiri en almennt gerist,
])jó arðsömu stórbúi og græddist allmikið fé á hænda
vísu. Var oft til hans leitað um lausn liagrænna mála,
bæði fyrir félagsheildir og stofnanir, og reyndist liann
jafnan liagsýnn og úrræðagóður. Margir samferðamanna
hans, sem áttu úr vöndu að ráða, leituðu hans liðsinnis,
því að haim var maður hjálpfús. Reyndist liann þeim
ráðliollur og réttsýnn um lausn mála.
Benedikt var forsjáll maður. Hann rasaði ekki um
ráð fram í framkvæmdum, svo sem hygginna manna er
háttur, en skildi við jörð sína svo sem bændaliöfðingja
sæmdi, er hann lét hana í hendur dóttur sinnar og
tengdasonar.
Benedikt var kvæntur Ingihjörgu Guðmundsdóttur,
bónda á Svertingsstöðum, síðar kaupfélagsstjóra á
Hvammstanga, Sigurðssonar.
Hann andaðist 31. október 1967.
Allir viðstaddir vottuðu hinum látna virðingu sína
með því að rísa úr sætum.
Þessu næst ræddi forseti um liina margvíslegu erfið-
leika, sem nú steðja að þjóðinni, bæði til lands og sjáv-
ar, og ræddi sérstaklega um erfiðleika bændastéttarinn-
ar vegna versnandi tíðarfars, verðfalls afurða og gengis-
fellingar krónunnar, og ennfremur um ráðstafanir, sem
gerðar hafa verið, eða þurfi að gera til úrbóta. Þá þakk-
aði hann traust það, er Alþingi og ríkisstjórn liefði lengi
borið til Búnaðarfélags Islands og Búnaðarþings og ósk-
aði, að svo mætti jafnan verða.