Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 134
128
BUNAÐARKIT
Að síðustu þakkaði hann forseta Islands fyrir þá virð-
ingu, er hann sýndi Búnaðarþingi með því að mæta við
setningu þess, og sagði síðan þetta Búnaðarþing sett, sem
er hið 50. í röðinni.
Landbúnaðarráðherra, Ingólfur Jónsson, ávarpaði því
næst Búnaðarþingið og ræddi um vandamál landbúnað-
arins á yfirstandandi tímum og nauðsyn þess að bregð-
ast rétt við þeim, og óskaði, að Búnaðarþingið mætti
bera gæfu til að vinna þannig, að það yrði til hagsbóta
fyrir bændastéttina og fyrir þjóðina alla.
Þingforseti þakkaði ráðherranum fyrir komuna og
úvarp lians.
Á 2. þingfundi voru kosnir varaforsetar:
1. varaforseti: Pétur Ottesen
2. varaforseti: Ásgeir Bjarnason.
Skrifarar voru kosnir:
Benedikt Grímsson og Sveinn Jónsson.
Samkvæmt tillögu stjórnar Búnaðarfélags Islands voru
fastanefndir kjörnar þannig:
F járhagsnefnd:
Ásgeir Bjarnason,
Benedikt Grímsson,
Einar Ólafsson,
Guðmundur Jónasson,
ICetill S. Guðjónsson,
Sigmundur Sigurðsson,
Sigurður Líndal.
JarSrœktarnefnd:
Egill Jónsson,
Helgi Símonarson,
Jóhann Jónasson,
Lárus Ág. Gíslason,
Teitur Björnsson,
Þorsteinn Sigfússon.
B úfjárrœktarnefnd:
Friðbert Pétursson,
Gísli Magnússon,
Hjalti Gestsson,
Magnús Sigurðsson,
Þórarinn Kristjánsson,
Össur Guðbjartsson.