Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 161
BÚNAÐARÞING 155
brot þessi reyndust vera af völdum Trichopliyton verru-
cosum.
/ desemberbyrjun 1967 varS vart við liringskyrfi á
kúm að Möðrufelli í Hrafnagilslireppi. Er það næsti
bær við Ytra-Fell. Breiddist sjúkdómurinn ört út í fjós-
inu, og hafa flestir gripir nú tekið veikina. Ekki er full-
kunnugt um, livernig sjúkdómurinn barst að Möðrufelli.
/ desember 1967 varð vart útbrota á kálfum að Dvergs-
stöðum í Hrafnagilshreppi, sem er næsti bær norðan
varnargirðingar um liina sýktu bæi. Ekki hefur tekizt
að staðfesta ennþá, að um hringskyrfi sé að ræða á þess-
um bæ, en tveir gripir þar eru með mjög grunsamleg iit-
brot.
Gripir á þeim bæjum, þar sem taldar eru mestar líkur
á, að sjúkdómurinn kunni að koma upp, liafa verið skoð-
aðir hvað eftir annað, en grunsamleg litbrot enn ekki
fundizt. Er þessum skoðunum lialdið áfram.
Strax og sjúkdómsins varð vart, voru ýmsar ráðstaf-
anir gerðar til þess að reyna að liefta útbreiðslu lians,
og var síðar gefin út sérstök reglugerð um það efni, eins
og yður er kunnugt. Tvöfaldar girðingar voru settar
upp umhverfis sýkta bæi strax og tíðarfar leyfði síðast-
liðið vor. I Hrafnagilshreppi voru aðstæður til varnar-
girðinga erfiðar, þar sem girða þurfti yfir fjölfarna þjóð-
vegi og setja þar hlið á girðinguna.
Örugg varzla liefur af þessum og öðrum ástæðum ver-
ið erfið, enda sætt nokkurri gagnrýni.
Þegar ljóst varð, að sjúkdómurinn liafði borizt bæði
í sauðfé og hross, var liorfið að því ráði að fella í haust
er leið sauðfé og liross á sýktum bæjum, þar sem von-
laust var talið að fylgjast með því, hvar fé og hross
flæktust um og bæru smit, eð'a að leita uppi sýkta ein-
staklinga í fjárhjörðum. Enn er ekki vitað, livort smit-
dreifing hefur orðið á liönu sumri með fé eða lirossum,
en ennþá hefur ekkert komið fram, sem hendir til þess,
að svo hafi orðið.