Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 165
BUNAÐAKÞING
159
þýðingarmiklum atriðum, t. d. live ónæmi eftir sjúk-
dóminn er stöðugt og langvinnt, live lengi smithætta
stafar af gripum, sem orðnir eru albata, hve lengi gró
sveppsins geta lifað utan skepnunnar við skilyrði hér á
landi o. s. frv.
Þar sem liringskyrfi er langvinnur sjúkdómur, sem
ekki veldur stórfelldu afurðatjóni eða dauða, má gera
ráð fyrir, að virðing manna fyrir sóttvarnaraðgerðum
kunni að slævast, er frá líður. Höfum við nærtæka
reynslu um annan langvinnan sjúkdóm, mun alvarlegri,
garnaveikina, er sýnir þetta.
Vegna þess live hringskyrfi er langvinnur sjúkdóm-
u r og fer oft dult, þó býsna smitnæmur sé, og smitefnið
lífseigt utan skepnunnar, er útrýming lians mjög örðug,
seinleg og kostnaðarsöm, eins og raunar hefur þegar
komið á daginn.
Ef þér óskið frekari upplýsinga um þetta mál, skal
ég fiislega láta þær í té, að svo miklu leyti, sem mér er
unnt.
Kelduin, 25. febrúar 1968,
Páll A. Pálsson.
Mál nr. 7
Frumvarp til laga um breyting á jar&ræktarlögum nr. 24
24. apríl 1965. Sent af landbúna&arnefnd efri deildar
Alþingis.
Frumvarp þetta fjallaði einungis um framræslu.
Búnaðarþing afgreiddi málið með eftirfarandi álvktun,
sem samþykkt var með 22 samhlj. atkv.:
önnur málsgrein a liðar orðist svo:
Héraðsráðunautar skulu leita eftir óskum bænda um