Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 173
BÚNAÐARÞING 167
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt
var með 22 samhlj. atkv.:
Búnaðarþing skorar á menntamálaráðherra að gera
nú þegar ráðstafanir til að treysta fjárliag Félagslieimila-
sjóðs með beinum fjárframlögum úr ríkissjóði, t. d. 5
millj. króna á ári, næstu 10 ár, eða auka fastan tekju-
stofn hans tilsvarandi.
Félagsheimilasjóður gegnir mjög þýðingarmiklu hlut-
verki í félags- og menningarmálum þjóðarinnar, sem
ekki má niður falla vegna fjárhagsörðugleika lians.
GreinargerS:
Upplýst er, að Félagsheimilasjóður á við skarðan fjár-
hag að búa.
Samkvæmt lögum um starfsemi hans er heimilt að
greiöa í styrk til bygginga félagsheimila allt að 40%
kostnaðar.
Stjórn sjóðsins hefur samþykkt að nota þessa lieimild,
enda eru þarfirnar mjög brýnar.
Áfallnar kröfur á sjóðinn, vegna framkvæmda, sem
lokið var fyrir sl. áramót og samþykktar voru af sjóð-
stjóm, voru um 49 milljónir króna.
Sjóðstjórnin hafði líka samþykkt styrkveitingar til
framkvæmda, sem áætlað var, að myndu kosta um 100
milljónir króna, og liluti Félagslieimilasjóðs þar af um
40 milljónir króna.
Samtals eru því samþykktar, en ófullnægðar kvaðir
sjóðsins nú orðnar um 90 milljónir króna.
Tekjur sjóðsins af skemmtanaskatti sl. ár námu um
7,4 millj. króna, og var því fé deilt á milli 76 aðila.
Margir þeirra aðila hafa tekið bráðabirgðalán til að
mæta ógreiddum framlögum sjóðsins, og fara framlög
lians í ýmsum tilfellum til vaxtagreiðslna og ná því ekki
tilgangi sínum.
Augljóst er, að tekjur Félagsheimilasjóðs fullnægja á
engan hátt fjárþörfinni lijá sjóðnum, og þarf því að