Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 179
BÚNAÐARÞING
173
Lítið er um, að byggð séu vel einangruð hús, án
áburðarkjallara, en sú gerð fjárliúsa var algengust allt
fram á fjórða tug þessarar aldar. Þessi fjárhús eru yfir-
leitt þurr og loftgóð, en gólf þeirra vilja blotna, þegar
gefinn er fóðurbætir og vel er alið, einkum á vorin, þeg-
ar ær bera í liúsi.
Þá hafa á síðustu árum víða verið byggð óeinangruð
bús, án áburðarkjallara, ýmist bogaskemmur eða lnis
með veggjum úr steinsteypu og með einföldu járnþaki.
Mörg þessara húsa eru ódýr, en oft rök og miklum vand-
kvæðum bundið að lialda gólfi nægilega þurru.
Htis með áburðarkjallara, svonefnd grindabús, bafa
við nýbyggingar liin allra síðustu ár verið einna algeng-
asta fjárbúsgerðin. Þau eru þó af mörgum gerðum. Þau
eru ýmist einangruð eða óeinangruð, og ýmist með
grunnum eða akstursbæfum áburðarkjallara. 1 þessum
lnisum er að sjálfsögðu vel fyrir því séð, að gólfin ltald-
ist ætíð nægjanlega þurr. En búsin geta verið með röku
lofti í vissu veöurfari, ef þau eru óeinangruð, og oft á
tíðum eru þau mjög köld, sem óeinangruð eru og með
djúpum áburðarkjallara.
Því miður verða grindaliúsin dýr í byggingu og því dýr-
ari sem meir er kostað upp á einangrun og stærð áburð-
arkjallara.
Sennilega er kostnaðarmunur á ódýrustu fjárhúsun-
um, óeinangruðu járnhúsunum, og vönduðustu grinda-
búsunum um það bil fjórfaldur á liverja kind. Það er
því fyllsta ástæða til þess að kanna með ýtarlegum rann-
sóknum, livert gildi liinna ýmsu f járliíisgerða er við mis-
munandi aðstæður í hinum ýmsu bvggðarlögum lands-
ins.
Mál nr. 26
Skýrsla undirbúningsnefndar utn djúpfrystingu nauta-
sœtSis. LögS fyrir af stjórn BúnaSarfélags Islands.