Búnaðarrit - 01.01.1968, Page 190
184
BÚNAÐARRIT
Hins vegar telur þingið, að leita eigi annarra leiða til
að leysa fjárhagsörðugleika hallarinnar, og leyfir sér í
því sambandi að benda á eftirfarandi:
1. Leitað sé eftir frjálsum framlögum og lánum hjá
bændum og fastlauna fólki við aðalfélagsmálastofnan-
ir landbúnaðarins.
2. Athugað verði um hækkun taxta á þjónustu Hótel
Sögu, og hvort ekki væri liægt að taka fastan inn-
gangseyri á almennar danssamkomur í Súlnasal hótels-
ins.
3. Leitað verði eftir innlendu föstu láni eða boðin út
skuldabréf á innlendum markaði til að losa bygging-
una við hin óhagstæðu erlendu lán, sem á lienni hvíla
nú. Vill þingið benda á, að eðlilegt megi teljast, að
Búnaðarbankinn lánaði nokkra fjárhæð úr sparisjóðs-
deild í þessu skyni.
4. Leitað verði til Reykjavíkurborgar og ríkissjóðs um
fjárframlög í nokkur ár samsvarandi nokkrum hluta
að þeim beinu og óbeinu tekjum, sem þessir aðilar
hafa gegnum rekstur þessa stóra fyrirtækis og sem hef-
ur svo margháttaða þýðingu fyrir báða þessa aðila.
i
Sveinn Jónsson, Egill Jónsson, Helgi Símonarson, Ingimundur Ás-
geirsson, Teitur Björnsson, Þorsteinn Sigfússon.
Þessi breytingartillaga var felld með 19 atkv. gegn 6
að viðhöfðu nafnakalli.
Egill Jónsson,
Helgi Síinonarson,
Ingimundur Ásgeirsson,
Ásgeir Bjarnason,
Benedikt Crímsson,
Egill Bjarnason,
Já sögðu:
Sveinn Jónsson,
Teitur Björnsson,
Þorsteinn Sigfússon.
Nei sögðu:
Einar Ólafsson,
Friðbert Pétursson,
Gísli Magnússon,