Búnaðarrit - 01.01.1968, Síða 268
262
BÚNAÐARRIT
lagi. Malir eru nokkuð grófar og afturdregnar, en fót-
staða þó fremur góð. Júgrin eru rýmismikil, en ná þó
stutt fram, og má ætla, að Flókadætur verði síðjúgra með
aldrinum. Flestar hafa góða spena, en sumar of stóra og
grófa. Mjöltun er ágæt. Fyrir byggingu lilaut þessi lióp-
ur 75,9 stig að meðaltali, og brjóstmál var 174 cm. Á
sýningunni var lýsingu á Flóka sjálfum breytt á þann
veg frá því, sem er í Búnaðarriti 1961, bls. 413, að liann
hefur nú djúpan bol, beinar og flatar malir, en nána og
útskeifa fótstöðu.
Þegar sýningin fór fram, liöfðu elztu dætur Flóka átt
4 kálfa, og var því komin mikil reynsla á þær. Að 1.
kálfi höfðu 17 þeirra komizt í 15,2 kg hæsta dagsnyt að
meðaltali og mjólkað í 219 daga að jafnaði 2236 kg með
3,96% mjólkurfitu eöa 8855 fe. Að 2. kálfi höfðu 11
komizt að meðaltali í 19,9 kg hæsta dagsnyt og mjólkað
1. lieila skýrsluárið 3352 kg með 3,82% mjólkurfitu eða
12838 fe. Sex höfðu að 3. kálfi komizt í 22 kg hæsta
dagsnyt og mjólkað 2. heila skýrsluárið að meðaltali 3811
kg með 3,64% mjólkurfitu eða 13872 fe. Afurðir þessara
systra sýna, að þær eru ágætlega mjólkurlagnar, líklega
þó fremur langstæðar, og mjólkurfita þeirra er mun
lægri en dætra liinn beztu nauta, sem notuð hafa verið
að undanförnu lijá S. N. E. Nokkuð sambærilegar skýrsl-
ur voru til um mæður Flókadætra að 1. kálfi. Höfðu 13
þeirra komizt í 13,8 kg hæsta dagsnyt og mjólkað að
meðaltali í 201 dag 1954 kg með 3,76% mjólkurfitu eða
7347 fe. Ekki þótti rétt að veita Flóka I. verðlauna við-
urkenningu, þótt dætur hans séu ýmsum kostum búnar,
og var hann felldur í vetrarbyrjun.
2. SkíSi N157, sonur Fylkis N88 og Ljómalindar 11,
Esterar Jósavinsdóttur, Másstöðum í Svarfaðardals-
lireppi. Sýndar voru 12 dætur Skíða. Var helmingur
þeirra skoðaður að Þverá í öngulsstaðalireppi, en hinar
á ýmsum bæjum, enda dreifðar um héraðið. Af þessum
dætrum Skíða vom 2 rauðhuppóttar, 4 bröndóttar og