Búnaðarrit - 01.01.1968, Blaðsíða 290
284 BÚNAÐARRIT
lömb annarra lirúta. Allur var hópurinn vel gerður og
samstæður.
Kópur 125 lilaut I. verSlaun fyrir afkvœmi.
B. Jökull 147 Braga Guðbrandssonar, Heydalsá, var
sýndur með afkvæmum 1964, sjá 78. árg., bls. 416. Jök-
ull liefur gefið marga góða I. verðlauna hrúta auk þeirra,
sem sýndir eru með honum nú, en þeir eru báðir góðir í
I. verðlaun. Ærnar, dætur hans, bafa reynzt mjög frjó-
samar og góðar afurðaær.
Jökull 147 lilaut nú I. verSlaun fyrir afkvœmi.
C. Sólon 149 Sigurgeirs Guðbrandssonar, Heydalsá, f.
Sóli 130, m. Gyðja 94, er mókolóttur, kollóttur, vel gerð-
ur og afburða baklioldagóður einstaklingur. Synirnir eru
báðir góðir I. v. hrútar, og 4 vetra hrúturinn fékk I.
heiðursverðlaun á héraðssýningu á Óspakseyri 1964. Af-
kvæmin eru hvít, kollótt, gul eða ljósígul á liaus og fót-
um nema fullorðnu hrútarnir, sem eru kolóttir. Ullin er
illhærulítil og góð, en ekki mikil. Lambhrútarnir eru
allir ágæt brútsefni og gimbrarlömbin líkleg ærefni.
Ærnar, dætur hans, eru gerðarlegar og þollegar, en ekki
nógu reyndar afurðaær enn. Vaxtarhraði lamba urn með-
allag, en kjötprósenta sláturlamba góð.
Sólon 149 hlaut II. verSlaun fyrir afkvœmi.
D. Hnallur 173 Sigurgeirs Guðbrandssonar, Heydalsá,
ættaður frá Klúku, f. Hnallur 146, er livítur, liyrndur,
fremur grófbyggður, ullin hvít og góð. Bak, mala- og
læraliold afbragðs góð. Afkvæmin eru hvít, nema ein ær
svört, bæði liyrnd og kollótt og hvít eða Ijósgul á haus
og fótum. Ullin vel hvít, laus við illhærur og nokkuð
mikil. Þau eru holdmikil og vel gerð. Annar fullorðni
lirúturinn ágæt I. v. kind, liinn lélegur, lambhrútarnir
álitleg lirútsefni og gimbrarlömbin góð ærefni. Ærnar
myndarlegar, vel gerðar og lofa góðu með afurðir.
Hnallur 173 hlaut II. verSlaun fyrir afkvœmi.