Búnaðarrit - 01.01.1968, Blaðsíða 304
298
BÚNAÐARRIT
Laugardaginn 8. október efndi Búnaðarsamband Skaga-
fjarðar til héraðssýningar á brútum austan Héraðsvatna
að Hóluni í Hjaltadal. Vegna meintrar garnaveikiút-
breiðslu vestan Vatna þótti ekki stætt að halda sýningu
á breiðari grundvelli. Dómnefnd skipuðu ráðunautarnir
Árni G. Pétursson, Sveinn Hallgrímsson og Ævarr Hjart-
arson. Dómstörf bófust kl. 9 að morgni og stóðu til
liádegis. Ivl. 14 setti formaður Búnaðarsambands Skaga-
fjarðar, Gunnar Oddsson, bóndi, Flatatungu, sýninguna
með nokkrum vel völdum orðum um ræktun og menn-
ingu. Þá flutti Árni G. Pétursson áminningarræðu um
fjárval, ræktun og uppeldi fjárins og lýsti dómum. Að
lokum ávarpaði Egill Bjarnason, ráðunautur, sýningar-
gesti, hann livatti þá til ræktunar og dáða, gaf ítarlegt
yfirlit um nýafstaðnar Jirútasýningar í liéraði og kom inn
á þörf þrifnaðarmála.
Alls voru sýndir á liéraðssýningunni 26 Jirútar, þar af
hlutu 4 I. lieiðursverðlaun, 14 I. verðlaun A og 8 I. verð-
laun B. 1 töflum er hrútum raðað eftir þeim reglum, er
getur hér að frainan. Heiðursverðlauna lirútar voru ekki
nógu glæsilegir, og ullarfar þeirra í lakara lagi. En lit-
aðar illliærur í ull munu um of algengar í skagfirzkum
lirútastofni. A flokks hrútar voru yfirleitt góðir og jafn-
ir að gæðum, en í B flokki var eðlilega mikill gæðamun-
ur milli einstaklinga. Svaði, 4 v., Haraldar Jóliannesson-
ar, Bakka, Viðvíkurbreppi dæmdist stigahæsti hrútur
sýningarinnar, lilaut samtals 89 stig fyrir byggingu og
ullareiginleika. Svaði er ættaður frá Svaðastöðum, liann
er hvítur, hyradur, samanrekinn, vöðvafvlltur, þrótt-
mikill og ágætlega gerður brútur, lágfættnr með góða
fótstöðu, en slæma ull. Annar í röð var Flosi, 7 v., Sigurð-
ar Friðrikssonar, Stekkjarflötum, Akrahreppi með 88
stig. Flosi er ættaður frá Miklabæ, f. Prúður á Hlíðar-
enda, Hofshreppi, hann er hvítur, kollóttur, eitilharður,
holdstinnur og langvaxinn, ineð vel livíta ull, mikil sóma-
kind. Víkingur, 5 v., Þórðar Stefánssonar, Hofi I, Hóla-