Morgunn - 01.12.1934, Blaðsíða 34
160
MORGUNN
Þetta gamla tilvitnaða erindi virðist bera það með
sér, að það sé upphaflega til orðið bæði „í gamni og al-
vöru“, og að höfundur þess hafi verið vantrúaður á það,
margt, flest eða alt, sem prestarnir á hans dögum höfðu
að segja um ,,hulda dóma“ heimsins og lífsins hinum meg-
in. En alla tíma, bæði fyr og síðar, hefir nú þetta við
brunnið, og mun við brenna, að margir hafa hugsað, og
munu hugsa, að hinum megin „dauða og grafar“ kunni
eða jafnvel hljóti margt, flest eða jafnvel alt að vera ann-
að eða öðru vísi en prestarnir segja. Og þetta er að vissu
leyti eðlilegt og vorkunnarmál; því að hér er sannlega um
„hulda dóma“ að ræða, hulda öllum, sem enn eru ekki
komnir „yfir um“, eða ekki hafa sjálfir fengið sjón og
heyrn eða reynslu annars heims. Þar að auki má alt af
hugsa, að annar heimur, og lífið í honum, sé þess eðlis,
sem erfitt eða jafnvel ómögulegt sé að lýsa nákvæmlega
með jarðneskra manna máli, mati eða mælikvarða; og að
þeir, sem lengst hafa skynjað inn í annan heim, hafi flest-
ir ekki getað lýst honum öðru vísi en með jarðneskum
táknum og líkingardæmum, sem ýmislega má skilja og
skýra. Sjálfur Páll postuli, einn sá mesti og máttugasti
hæfileikamaður, sem uppi hefir verið, sem segir skýlaust
frá því, að hann hafi verið „upp numinn, alt upp í þriðja
himinn“, hvort það var í líkamanum eða utan líkamans,
það vissi hann ekki, —hann segist þar hafa séð „óumræði-
lega hluti, og heyrt óumræðileg orð, sem engum manni er
unt að tala“.
Sundar Singh, indverski dulspekingurinn, Kristsvin-
urinn og kristniboðinn mikli, sem uppi hefir verið á vor-
um dögum, og boðað Krist og hann krossfestan um allar
jarðir, eins og Páll postuli, segist líka oft hafa verið „upp-
numinn“, eða hrifinn í annan heim; og menn hafa horft
á hann í því ástandi himinhrifningarinnar; og hann segir,
að margt af því, eða jafnvel flest, sem hann þá sá og heyrði,
sé svo óumræðilegt, að ómögulegt sé orðum að að koma.
Og eftir órengjanlegum vitnisburðum hefir og mörgum