Morgunn - 01.12.1934, Blaðsíða 62
188
M0R6UNN
mínum (samanber þó sérstaklega skýrsla mín um lækning-
ar á Reykjahæli).
Hefi eg nú fyrir hið góða, guðdómlega, kærleiksríka
allífsafl aftur fengið þá heilsu, að eg get haft fótaferð.
Eg vona, og hefi vissu fyrir, að þessi lækning sé sú bezta
sem eg hefi fengið, og lengra líði nú en áður, þar til
eg kenni aftur til muna minna fyrri sjúkdóma. Því enginn
læknir, hversu góður sem hann er, ver því, að þessi vor
líkamlega, jarðneska tjaldbúð hrörni og hrynji, þegar hún
er orðin ónýtur bústaður sálarinnar.
Að lokum færi eg hugheilar hjartans þakkir öllum
þeim, sem mig hafa stutt og styrkt í orði og verki eða á
annan hátt rétt mér hjálparhönd í veikindum mínum.
20. marz 1984.
Jóhann S. Lárusson,
frá Skarði, Skagafirði.
V.
Vottor&in.
1.
Við undirrituð vottum hér með, að í framan skrifaðri
skýrslu hefir Jóhann Lárusson frá Skarði í Skagafirði
skýrt rétt frá öllu viðvíkjandi legu sinni frá 18. febr. s. 1.
til 16. marz, og að hann sagði hana fyrir, eins nákvæmlega
og þar er frá skýrt.
Undirrituð 24 nöfn.
2.
Árið 1934, þann 16. apríl, vorum við undirritaðir
staddir hér á Meyjarlandi með nokkra sjúklinga, þar eð
við vissum, að þeir fengju lækningastraum frá Friðrik
lækni í gegn um Jóhann S. Lárusson frá Skarði.
Klukkan 6 byrjuðu lækningar á Sigrúnu Ó. Snorra-
dóttur; gengur hún með mjög illkynjaðan nefsjúkdóm og