Morgunn - 01.12.1934, Blaðsíða 108
234
M 0 11 G U N N
Fyrsta húsið
bygt.
raun um, að honum var alt af að versna, og að enginn gat
neitt bætt honum. Hann fékk þá þeirri orðsending kom-
ið til spiritistanna, að hann sæi eftir atferli sínu við þá,
og bað um fyrirgefningu þeirra. Þeir veittu hana af fúsu
geði, og maðurinn lofaði að áreita þá aldrei framar. Hon-
um batnaði.
_ .. , Um tíma sendu valdhafarnir leynilögreglu-
Logreglan og _ , „ . . ... ,
spíritistarnir menn Pess ae vera a fundum spiritista.
En innan skamms fór lögreglumönnunum
að finnast, að spiritistarnir væru að reka nokkuð merkilegt
erindi. Þeir hættu þessu eftirliti, og margir þeirra gengu
inn í hreyfinguna og hjálpuðu til þess að verjast and-
stæðingunum.
Fyrri hluta ársins 1914 fóru að koma þrá-
látar kröfur um það úr öðrum heimi, að
spiritistar í Radvanice kæmu sér upp húsi.
Til þess var lítið fé handbært. En því var haldið fram af
miklu kappi af hálfu framliðinna manna, að mikill skortur
og sorg væri yfirvofandi, og að ef þeir kæmu ekki húsinu
upp tafarlaust, mundu þeir verða of seinir á sér. Þeir
hlýddu þessum fyrirmælum og byrjuðu á húsbyggingunni
snemma sumars. Fáum vikum síðar skall ófriðurinn á.
Allir unnu að húsinu, karlar, konur og börn. Menn komu
úr öðrum héruðum til þess að hjálpa spiritistunum í Rad-
vanice. Sumir grófu, aðrir báru múrsteina og timbur, og
margir þeirra höfðu aldrei snert á slíkum verkum fyr á
æfi sinni. Oft var byrjað með sólaruppkomu, og vinnu
hætt í tunglsljósi. Eftir sex mánuði var húsið komið upp.
Byggingarefni hafði verið ódýrt þennan tíma, enda mikið
gefið, bæði af efni og peningum. Fögnuðurinn var mikill.
Húsið komst upp áður en ófriðurinn olli miklum hörmung-
um. Þetta var fyrsta spiritistahúsið, sem reist var í veldi
Austurríkiskeisara, og þar er nú miðstöð czecknesku spiri-
tistisku hreyfingarinnar. Húsið varð of lítið, áður en langt
leið. En þá var gert úr því voldugt stórhýsi.