Morgunn - 01.12.1934, Blaðsíða 92
218
M 0 R G U N N
að halda illum öflum svartagaldurs í skefjum — en
hér er engin óhrjáleg barátta háð um lönd og fé.
Baráttan í alheiminum er eilíf, en hún lyftist stöð-
ugt í hærra veldi, eftir því sem vér komumst lengra, þar
til hún rennur út í þá mynd, á sviðunum hinumegin við
astral-svæðið, sem meðvitundarlíf vort fær ekki á nokk-
urn hátt gert sér grein fyrir.
Og þótt um „stríð“ sé að ræða, þá er það ekki stríð
örkumla og dauða; en sumir af oss hafa komist að raun
um, að hildarleikur hins góða og illa í Opinberunarbók-
inni er ekki hugarburður einn, heldur áreiðanleg stað-
reynd. —
Því þótt margir vinir vorir, sem lýðræðinu unna,
séu stöðugt haldnir af þeirri hugsun, að ógerlegt sé að
breyta þjóðfélagsháttum nema að breyta mönnunum,
sem hættina settu á fót, þá er þó óhætt að segja, að enda
þótt margir fræðendur vorir haldi því fram, að einhver
tegund af jafnaðarmensku, í hugsjónaríkustu mynd
hennar, muni að lokum bjarga veröld vorri, þá ríki þar
fyrir handan, þótt undarlegt megi virðast, jafnaðar-
menska einstakþngshyggjunnar, sem styðst við andlega
höfðingjastjórn. Því að á astral-svæðinu eru allir frjáls-
ir, einstaklingurinn er konungur!
Þar fyrir handan er stjórnað með Miðstjórnarráöi,
og eru ýmiskonar undirráð skipuð, eftir því sem vér
höfum ástæðu til að halda, því til aðstoðar. Og eg býst
við að um stöðugt samband og samvinnu sé að ræða
milli ráðanna á mismunandi sviðum. Og eins og síðar
mun verða sýnt fram á, þá er einmitt samskonar sam-
vinna að hefjast með vorum heimi og astral-svæðinu.
Andleg höfðingjastjórn er hinumegin, í stað ættar-
höfðingja og peninga-höfðingja hér. Um lýðræði er það
að segja, að orðið er meiningarlaust á astral-svæðinu,
þótt eg .efist ekki um, að Nicolai Lenin, Karl Marx og
aðrir lýðræðis-einræðismenn, og þá jafnframt aðrir forn-
ir foringjar hinna mjög svo virðulegu „verkamanna-