Morgunn - 01.12.1934, Blaðsíða 103
MORGUNN
229
og hann verður að vera efldur og fullkominn eins og
hinar fornu grísku fyrirmyndir.
Því eins og vér höfum séð, er það fyrst á astral-svið-
inu, sem maðurinn er sér þess meðvitandi, að líkami hans,
sál og andi sé ein heild, og þar býr fögur sál í fögrum
líkama — fíngerðum líkama að vísu, en líkama. Astral-
leiðsögumennirnir hafa þráfaldlega sagt oss frá því, að
þegar þeir lcomi til jarðarinnar, þá séum vér oft í þeirra
augum eins og ljótir gráldæddir dvergar með dverglegar
hugsanir og viðhorf. Eg hefi oft heyrt mikinn leiðsagn-
ara einn mæla með mildri hæðni: „Þið eruð aiveg eins og
skjaldbökur. Þér segið, að við séum „dánir“. Það eruð þér,
sem í vorum augum virðist „da,u8ir“.
Og er þetta ekki rétt? Og hafa ekki ýmsir af oss látið
sér koma eitthvað líkt til hugar, er vér höfum verið í
þunglyndara lagi?
Vér skríðum hér jarðbundnir á þessu sviði harms og
sorgar, vér karlar með harða hatta, í ljótum, fóðruðum,
þröngum jökkum, þéttpressuðum buxum með harða fiibba
og handstúkur, og konurnar á háum hælum eins og á gang-
stígum, málaðar í framan og í strengdum flíkum — það
væri ekki undarlegt þótt vér litum furðulega út í augum
astral-búans, er hingað kæmi af tilviljun.
Því að vér höfum lagt niður þá líkamlegu dýrð, sem
Grikkland bjó yfir og þann stíl og formfegurð, sem var
dásemd hins heiðna heims. Vér höfum lagt niður almenna,
eðlilega leikfimi og kappleika, en í þess stað skilið þetta
eftir í höndum atvinnu-íþróttanna; horfnir eru þeir dag-
ar Aþenuborgar, er grískar konur gengu daglega út á í-
þróttavöll til þess að móta líkami sína og hugsanalíf með
leikfimi.
Og ásamt þessu höfum vér mist af því, sem í andleg-
um efnum svarar til þessa. Hin raunalega grámóða féll
svo skjótt eins og líkklæði yfir yndisleik kenninga Jesú,
sem jafnvel í afskræmdum búningum, sem borist hafa til