Morgunn - 01.12.1934, Blaðsíða 107
MOEGUNN
23$
Fjandskapurinn gegn spíritistunum varð
rammur, einkum frá kirkjunnar hálfu. I
jarðarfarir. mörgur þorpum í Czecho-Slovakiu eru
sérstakir reitir í kirkjugörðunum ætlaðir
líkum þeirra manna, sem hafa fyrirfarið sér sjálfir, í
stað þess sem lík þeirra manna voru áður jörðuð utan-
garðs hér á landi. Spiritistum var bannað að jarða lík
ástvina sinna annarstaðar en í þessum sjálfsmorðingja-
reitum. Einu sinni, þegar spiritistaútför fór fram, skip-
aði presturinn sér, ásamt nokkurum mönnum úr söfnuði
hans, þar á meðal borgarstjóra, á mittstrætið, til þess að
aftra því, að líkfylgdin gæti komist leiðar sinnar. Þeir
vonuðu, að spiritistarnir færu að beita handalögmáli, til
þess að komast áfram með líkið, og svo mætti lögsækja
þá fyrir það. En spiritistarnir gerðu sér hægt um hönd
-— hver fór heim til sín og líkkistan var skilin eftir á
miðju strætinu. Borgarstjóri neyddist þá til þess að sjá
um að endir væri bundinn á útförina. í annað skipti
var líkkistan tekin við kirkjugarðshliðið, en aðstand-
endum bannað að fara inn í kirkjugarðinn. í einu þorpi
fann presturinn einu sinni upp á því, að banna spiritist-
um að nota kaðla, sem kirkjan átti og hafðir voru til
þess að hleypa kistunum niður í grafirnar. Spiritistar
vildu syngja kveðjusöng við gröfina, en þeim var bann-
að það, og skipað að halda áfram greftruninni. Þá vant-
aði kaðlana, og aðstandendur hins framliðna tóku þá
það ráð, að halda heim og skipta sér ekkert frekar af
jarðarförinni. Svo að andstæðingarnir urðu að koma kist-
unni í gröfina sjálfir og voru hinir verstu.
Fi'amhaldið af þessari sögu var dálítið
Andstæðingar ^ynlegt. j>rír leiðtogar andstæðinganna
apmtistanna
veibjast veiktust braðlega eftir þessa jaröarfor,
og tveir þeirra dóu. Þetta vakti hugaræs-
mg í þorpinu. Fólk fór að halda, að þetta væri refsing
fyrir það, að mennirnir hefðu ofsótt spiritistana. Þriðji
Kiaðurinn, sem veiktist, var háaldraður, og komst að-