Morgunn - 01.12.1934, Blaðsíða 93
M ORGUNN
219
flokka“ um veröld víða og eins jafnvirðulegir foringj-
ar mótstöðuflokkanna, sem eru þeirra eigin spegilmynd-
ir, muni að minsta kosti í fyrstu reyna að halda áfram
gamla leiknum og halda hátíðlegar ræður yfir engum
áheyrendum.
Högum er svo háttað fyrir handan, að lýðskrumar-
inn lendir einhvern veginn á sorphaugnum, og sama er
líklega að segja um höfðingjann og hefðarkonuna, sem
ekki hafa reist líf sitt á eigin hugsunum, heldur á for-
tíðinni, og æsktu raunar aldrei neinnar framtíðar ann-
arar en fortíðarinnar!
En eg efast ekki um að segja megi í almennum
orðum, að íhalds-, frjálslyndis- og jafnaðarmannaflokk-
ar verði áfram fyrir handan, þó ekki væri fyrir aðra
ástæðu ,en þá, að þessi nöfn tákna ákveðið upplag eða
hugarstefnu manns. Eg hygg aðeins, að aðferðir þeirra
og kosningahættir verði aðrir. En annars er mjög lítil
fræðsla fyrir hendi um einstök atriði þessara efna á
astral-svæðinu.
Hugar-upplagið er það sama. Það eru viðfangsefnin
sem eru önnur.
Eg býst við, að þeir menn, sem stöðugt hafa legið á
herðum almennings, sjálfum sér og almenningi til ómet-
anlegs tjóns, muni komast að raun um áð það, sem
heldur þeim ósveigjanlega í skefjum í brölti þeirra fyrir
stríði og valdabaráttu, sé nákvæmlega hið sama, sem
heldur oss frá astral-svæðinu — og það ,eru s v e i f 1 u r.
Af hinum margfalda og aukna sveigjanleika sveiflu-
áhrifanna stafar það, að gott og ilt fellur óhjákvæmilega
í föst lög eða heildir, og mér virðist sem hið illa á lægri
sviðunum muni vera þess mjög lítið umkomið að hafa
áhrif á svæðin fyrir ofan, gagnstætt því sem hér gerist,
er gott og ilt er nærri því ótrúlega samfléttað. Þ.essir
htlu, valdaþyrstu menn reyna þetta, en er hrundið til
haka, og er þeir hafa sezt að í hinum lægri astral-svæð-
um, sem er þeirra eðlilega heimlcynni, þá eru þeir neydd-