Morgunn - 01.12.1934, Blaðsíða 109
MOEGUNN
235
Það virðist svo, sem að minsta kosti víða
Bezt þegið. um jan(jjg gg ekkert betur þegið í pré-
dikunum prestanna en það, er þeir minnast afdráttar-
laust á árangur sálarrannsóknanna. Sjálfur hefi eg heyrt
óteljandi ummæli kirkjugesta í þá átt. Og þau berast að
hvarvetna af landinu. Eg hefi nýlega átt tal við mann,
sem ferðaðist um Norðurland fyrir ekki löngu. Hann
sagðist hafa komið á bæ að nýafstaðinni guðsþjónustu,
sem þar hafði verið haldin. Presturinn var farinn, en
eínhver töluverður hluti af söínuðinum var eftir. Þar var
ekki talað um annað en ræðu prestsins um daginn. Menn
voru í fagnaðarhrifningu út af því, að nú hefði prest-
urinn tekið af skarið um afstöðu sína til miðlasambands
við annan heim, og skorinort dregið þess taum. Ferða-
maðurinn sagði, að fólkið hefði verið eins og með barns-
lega tilhlökkun til þess að presturinn segði því meira um
þessi efni.
„ . . _ Fyrir nokkurum mánuðum flutti præp.
lirmdi sira Kr. , , ^ n. „ _ _
Danielssonar. •'10n- Knstmn Danielsson ermdi 1 S. R. í.
í., sem hann nefndi: ,,Frá reynslu minni“
og prentað var í síðasta árgangi Morguns. Á eftir erind-
inu sagði forseti félagsins nokkur orð, aðallega til þess
að þakka ræðumanni ágætt erindi, og komst þá meðal
annars að orði á þessa leið:
. . v „Ef slík ræða eins og þessi hefði komið frá
negar við vor- . . , Tr . , .
utn að byrja Jafnmikilsmetnum manm og sira Kristni
Daníelssyni, þegar við vorum að byrja
hér á tilraunum, í óþökk allrar þjóðarinnar, þá hefði
okkur fundist mikið til um það. Óvildarstrokurnar komu
frá öllum hlutum Iandsins. Hér í Reykjavík var skorað á
þáverandi biskup landsins á fjölmennum fundi að segja
af sér, af því að hann hafði framið það ódæði að koma
á tilraunafund. íslenzkir stúdentar í Kaupmannahöfn
^etluðu að ærast, og vestan um haf komu hinar ómjúk-
ustu kveðjur og hörðustu ásakanir og áfellisdómar.