Morgunn - 01.06.1936, Qupperneq 21
MORGUNN
15
til, að þér eigi fyrirlítið neinn af þessum smælingjum,
því að eg segi yður, að englar þeirra á himni sjá ávalt
auglit föður míns, sem er á himni (v. 10). Getum vér
þannig fundið stoð í orðum Jesú sjálfs bæði þeirri trú, að
englar vaki yfir oss, og einnig hinni, að a. m. k. ýmsir af
þessum englum séu framliðnir vinir vorir, sem láta sér
ant um eftirlifandi ástvini, og aðrir þroskaðir menn, sem
falið hefir verið það sérstaka starf, að gæta þeirra, sem
eiga enn í stríði og amstri á jörðu hér.
Sem síðustu röksemd í þessu máli skal eg láta mér
nægja að benda til hins afar-víðtæka vitnisburðar sálar-
rannsóknanna, og á eg þá sérstaklega við þær rannsóknir,
sem framdar hafa verið af nákvæmum rannsóknarmönn-
um undir vísindalegum skilyrðum, og geta því fyllilega
talist vísindaleg rök. Eg get ekki bent hér á einstök dæmi,
en verð að láta mér nægja, að minna á þetta mál, sem
mörgum er kunnugt, og hefir brugðið nýjum og björtum
skilningi yfir samband vort við hina andlegu tilvist. Að-
eins langar mig til að vitna að lokum í tvenn ummæli, sem
sýna hverja þátttöku við megum búast við að fá, þegar
við höldum guðsþjónustur í kirkjum vorum. Hin fyrri er
eftir einn af yngri prestum þessa lands, og er á þessa leið:
„Er ekki líklegt, að við guðsþjónustu í fagurri kirkju,
vel sóttri af trúuðum mönnum, skapist það umhverfi og
þau skilyrði, sem gera ósýnilegum, andlegum verum úr
æðra heimi mögulegt að dvelja með oss og deila gleði sinni
og tilfinningum með oss, enda þótt vér í fæstum tilfellum
verðum þeirra sýnilega vör? En þeir menn eru til, og það
allmargir, sem hafa fengið að líta andlegan söfnuð við-
staddan guðsþjónustur vorar, söfnuð, sem öllum fjöldan-
um er ósýnilegur. Og sumir prestar, að minsta kosti,
flytja prédikun sína með það fyrir augum, þegar fátt er
í kirkju hjá þeim, að ósýnilegur söfnuður sé í kirkjunni
og taki öflugan þátt og innilegan í allri guðsþjónustunni".
(Lindin 1933, bls. 34—35).
Hér í þessum orðum prestsins er ekkert fullyrt, en