Morgunn - 01.06.1936, Page 57
MOEGUNN
51
verið vefengd. í þessu hygg eg að félagsmenn hafi und-
antekningarlítið fylgt forsetunum.
Eg hefi nefnt áður merkiskonuna frú St. Clair Stobart.
Ritið, sem eg hefi fyrir mér (Ps. Gazette), segir að hún
sé ein allra merkasta kona, sem uppi hefir verið á seinni
tímum. 1 hinu stórmerka og mikla lífsstarfi hennar standa
fremst mannúðar- og hjúkrunarmál. Þegar Balkan-stíðið
stóð 1912—13 stýrði hún hjúkrunardeild og stjórnaði einni
hersveit í liði Búlgara. í heimsstyrjöldinni 1914 kom hún
með félagi kvenna á fót sjúkrahúsum í Belgíu og Frakk-
landi. Hún var handtekin af Þjóðverjum og átti að skjóta
hana sem njósnara. Hún fór til Serbíu og kom í liði Serba
UPP sjúkrahæli og á undanhaldi þeirra var hún hátt stand-
andi foringi. Var hún þá kölluð hefðarkonan á brúna hest-
inum, því að hún reið alt af á brúnum hesti. Hún er
íþróttakona hin mesta, hefir unnið í tennis og golf o. fl.,
hljómlistarkona, hefir haldið fjölda af fyrirlestrum og rit-
að fjölda af bókum. En mesta hugðannál hennar hefir þó
verið spíritisminn. Hún stofnaði félag, sem heitir Spiri-
lualist Community, félag enskra spíritista, til að útbreiða
°g efla spíritisma í landinu og hefir það síðan 1932 hald-
út mánaðarriti, sem heitir: Spíritistinn. Hún hefir frá
uPphafi verið forseti félagsins, og ræður að líkum að hún
hefir verið í miklum hávegum höfð hjá spíritistum bæði
1 Englandi og annarstaðar. Þessi kona lýsti yfir á sam-
komu í félagi sínu í ágúst 1932, að það væri brennandi
osk sín, að kirkjurnar vildu taka að sér spíritismann, eins
°g hún sagði, „lock, stock and barrel“, það er eitthvað sama
sem með húð og hári eða að öllu leyti og þá ætti ekki að
Verða þörf fyrir neinar sérstakar spíritista-guðsþjónust-
Ur- Það má geta nærri, að þessi tillaga frá slíkri konu
sem frú Stobart fór ekki fram hjá án þess að henni væri
veitt eftirtekt. Urðu um hana fyrst í stað miklar umræð-
ur og tóku margir til máls. Sumir voru hrifnir af hug-
Piyndinni og tóku henni mjög vel. Aðrir töldu hana ófram-
kvæmanlega, hversu æskileg, sem hún gæti verið í sjálfu
4>H