Morgunn - 01.06.1936, Qupperneq 58
52
MORGUNN
sér; sumir voru andstæðir af því að kirkjunni væri ekki
að treysta og ummæli kennimanna hennar sýndu að það-
an væri ekki samvinnu að vænta. Kvað þar mest að um-
mælum M’Indoes, sem er forseti Þjóðbandalags enskra
spíritistakirkna (Spiritualist National Union), en þær
munu orðnar mikið á sjötta hundrað. Hann tók tillög-
unni kurteislega, en sagði: Eg get ekki séð, að þetta sé
framkvæmanlegt; til þess er mótstaða kirknanna of bitur
og t. d. hefir prófastur Inge skorað á biskupana, að lýsa
yfir afdráttarlaust, að kirkjan geti ekki haft saman við
spíritismann að sælda“. Hjá enn öðrum hafa mótmælin
stafað beinlínis af andúð gegn kirkjunni og kenningakerfi
hennar, eins og t. d. Arthur Findlay, höfundi hinnar
ágætu bókar: Á landamærum annars heims, sem forseti
hefir útlagt á íslenzku og þér munuð flest eða öll kannast
við. Skoðanamunurinn á rót sína nokkuð í því, hvernig
á spíritismann er litið, hvort hann sé trúarbrögð út af
fyrir sig eða aðeins grundvöllur allra meiri háttar trúar-
bragða, sem trúa á framhaldslíf. Frú Stobart segir: Eg
lít svo á, að í sjálfu sér sé spíritisminn ekki trúarbrögð,
heldur sé hann það, sem gerir trúarbrögðin — eins og
sérhver trúarbrögð — að sönnum veruleik, og óskar að
þau öll hljóti í ljósi hans nýja skýring á trúarsetningum
sínum. Aftur á móti segir Findlay, að spíritisminn sé sín
trúarbrögð, og hann eigi með þeirri þekking, sem hann
veitir, að verða einu og alheimstrúarbrögðin. Umræður
hafa sjálfsagt orðið minni um þetta síðustu misseri í
Englandi. En annars væri svo mikið að segja um afstöðu
kirkjunnar og spíritismans á Englandi, að eg get ekki í
þessu máli gert yður grein fyrir því. Það væri nægilegt
ritgerðarefni út af fyrir sig. En þó að spíritistar sé ágrein-
ingslaust allir vel sammála um meginatriði málefnis síns,
framhaldslíf og samband heimanna, þá hygg eg að flest-
um muni vel geðjast þessi skoðun hennar og áhugi á, að
kirkjan færi sér í nyt stuðning spíritismans og eins hitt
að mikill kraftur og áhrifavald kirkjunnar greiði götu
J