Frjáls verslun - 01.04.2003, Qupperneq 117
FYRIRTÆKIN Á NETINU
Netauglýsingar
Auglýsingar á Netinu eru smám saman að vinna sérsess
hérá landi enda eru netauglýsingar komnar vel á skrið
erlendis. íslendingarfara sér hægar í sakirnar. Fyrirtœki
birta helst borða, svokallaðan „banner“, á stórum vefmiðlum
ogstundum bregðurfyrir einhverri hreyfingu á borðanum.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Fyrirtæki hafa reynt að nýta sér Netið sem auglýsingamiðil
og smám saman er Netið sem auglýsingamiðill að taka við
sér eftir Netæðið sem geisaði um heiminn lyrir nokkrum
árum. Netið hefur haldið áfram að lifa og það góðu lífi. Flest
fyrirtæki reka eigin vefsíður og stór fyrirtæki eiga það til að
setja upp sérstakar vefsíður til kynningar eða sölu á ákveðnum
framleiðsluvörum. Hér á landi hefur Netið einnig verið notað
til að auglýsa og skrá menn á fundi og ráðstefnur, svo að dæmi
séu nefnd. Þannig eiga fyrirtæki lika til að kaupa pláss undir
borða sem vísar umferðinni annað. Dæmi um þetta er auglýs-
ingaborðinn ellismellur.is sem nýverið var birtur á Mbl.is.
Hann beindi umferð ungs fólks inn á upplýsingasíðu um
ímyndarherferð í þágu aldraðra. Netið vex því stöðugt, bæði
sem miðill og markaðstæki.
Möguleikarnir vannýttir Þegar erlendir fréttamiðlar eru skoð-
aðir kemur fljótlega í ljós að þar leynast ljölbreyttar auglýsingar
í dágóðu magni. Þannig fara reglulega stutt og skondin mynd-
skeið úr sjónvarpsauglýsingum erlendra stórfyrirtækja um
tölvupóst netverja um allan heim. Auglýsingaborðar skreyta
yfirleitt alla fréttavefi og í mörgum tilfellum er hreyfing notuð
til að fanga augað eða þá að stærri auglýsing hrekkur fram
þegar músin færist yfir auglýsinguna og birtist þá önnur útgáfa
af sömu auglýsingu. I sumum tilfellum eru auglýsingar seldar
inn í fréttirnar miðjar þannig að lesandinn verður að skrolla yfir
auglýsinguna til að halda áfram lestrinum. I enn öðrum til-
fellum getur gluggi opnast leiftursnöggt og horfið á bak við vef-
síðuna. Notandinn verður síðan að loka honum sérstaklega.
Þetta er aðeins eitt af því fáa sem viðgengst á markaði netaug-
lýsinganna úti í heimi.
Magnús Orri Schram, sem rekur auglýsingastofuna Birtu
Vefauglýsingar, segir að í dag hafi Netið mjög skýra skírskotun
til unga fólksins, sérstaklega ákveðinna aldurshópa, og oft á
tíðum sé þessi skírskotun jafn mikil eða meiri en þegar um
sjónvarp er að ræða. I sumum tilfellum noti ungt fólk Netið
meira en sjónvarp og því sé eðlilegt að nota Netið samhliða
sjónvarpi eða jafnvel eingöngu til að ná til ákveðinna aldurs-
hópa. Auglýsingamarkaðurinn á Netinu sé ungur ennþá en eigi
eftir að stækka eftir því sem tíminn líður og notendurnir eldast
og nýir aldurshópar koma inn. Auglýsendur séu að þreifa sig
áfram á Netinu. Möguleikarnir séu vannýttir en þekkingin og
fagmennskan vaxi ört. Fyrirtæki hér á landi noti almennt séð
þrjú prósent af markaðsfé sínu í gagnvirkt markaðsstarf á Net-
inu en erlendis sé þetta hlutfall 10-15 prósent. Islenskir netaug-
lýsendur séu mjög tillitssamir við viðskiptavini sína.
Gegnsæjar auglýsingar Þegar rætt er um það hvernig aug-
lýsingar eru notaðar á Netinu hér kemur í ljós að auglýsinga-
borðar eru í miklum meirihluta. Hér á landi hefur lítill áhugi
verið á gluggum sem opnast um leið og farið er inn a vefsíðuna
og loka þarf sérstaklega enda segir Magnús Orri að sú auglýs-
ingaaðferð veki mikla óánægju, sérstaklega meðal kvenna.
„Það er mjög lítil stemmning fyrir þessu hér á landi og þetta
hefur nánast ekkert verið í gangi. Við höfum hinsvegar gert
gegnsæjar auglýsingar með hreyfingu sem fer stundum yfir
textann í kringum hana. Þetta er á mörkunum því að stundum
finnst fólki þetta trufla.“ S!1
EE
Á fréttaforsíðu Aftonbladet.se kemur upp
Nokia-sími þegar músin fer yfir borðann
efsttil vinstri. Á þessum netmiðli viðgengst
að setja auglýsingar inn í miðjar fréttir.
9BMI -Inl xf
Klikfor m ere oni
(e>business on demand
Eftir heimsókn á erlendan fréttavef sat
þessi auglýsing eftir á skjánum.
Simaskra.is er einn fjölsóttasti vefurinn hér á
landi. Nýlega mátti sjá þar þrjá auglýsinga-
borða, m.a. frá TVG-Zimsen, DV og Tölvu-
miðlun fyrir utan eigin auglýsingar.
VIÐSKIPTI ■ TÖLVUR • FERÐALÖG ■ VÍN - WWW.HEIMUR.IS
117