Ný saga - 01.01.1989, Side 16

Ný saga - 01.01.1989, Side 16
■ft'IWl Byltingarágripið átti að varpa Ijósi á bakgrunn stórtíðinda árin 1795-1796. Hvert sótti Magnús efni og hugmyndir I byltingarágrip sitt? Þessar upplýsingar gefa vís- bendingu um hvaða heimildir M. St. notfærði sér einkum við samningu ágripsins. Helst er að skilja orð hans svo að hann hafi framan af einkum stuðst við einhvers konar endursögn af riti eftir Rabaut Saint-Etienne.10 Á öðrum stað talar hann um þetta rit sem „ypparlega frásögn...“ er þessi „lærði, blíði og eðallundaði maður...“ hafí skrásett (s. 64). M. St. nafn- greinir hvergi rit Rabauts en vís- ar til verks eftir Friederich Schultz sem styðjist meira eða minna við þetta fyrrnefnda. Nú er að finna í Landsbóka- safni danska þýðingu á verki sem eignað er Friederich þess- um Schultz, Efterretning om den store Revolution i Frank- rige, 1. og 2. hluti, Kbh. 1791 og 1793- Á titilsíðu 1. hl. stendur: „Oversat efter den tyske Origin- al.“ Hér sést ennfremur að hin þýska útgáfa kom út í tveim hlutum, í Berlín 1790 og Braun- schweig 1791 (skv. British Museum Catalogue undir heit- inu Geschichte der grossen Revolution in Frankreichj. Af titilsíðunni verður ekki ráðið annað en að um sjálfstætt verk af hálfu Schultz sé að ræða. En í raun og veru fer því fjarri. f Efterretning... ,2. hl., þar sem hinni eiginlegu sögulegu frá- sögn lýkur og við tekur orðrétt- ur texti hinnar nýstaðfestu stjórnarskrár Frakka (1791), má lesa eftirfarandi: Undanfarandi frásögn er svo til orðrétt (næsten Ord for Ord) tekin eftir Almanach historique de la révolution franqaise sem hr. J.P.Rabaut liefur samið; þótti réttast að gefa óhlutdrægum sjónar- votti orðið.11 Þessi síðustu ummæli eru síðan rökstudd nokkuð. í ljósi þessara upplýsinga verður það fyrst fyllilega skiljanlegt sem stendur aftast í 1. hl. verksins, þ.e. „Forfatterens Forerindr- ing“, dags. í París 5. sept. 1789- Nafn höf. kemur hér ekki fram en hann kveður tilganginn með ritinu vera að „eftirláta komandi sagnriturum minningar um nokkra viðburði, sem höfund- urinn var svo lánsamur að vera sjálfur sjónarvottur að flestöll- um.“12 Við þennan eftirmála Rabauts hefur þýðandinn Schultz bætt nokkrum athuga- semdum (án þess þó að nafn- greina sjálfan sig). Hann hafi varast að hnika nokkru til í text- anum er gæti breytt merkingu hans, aðeins gert sér far um að hagræða orðalagi svo að text- inn yrði „skiljanlegur þeim sem eru ekki vanir að lesa hina nýrri rithöfunda Þjóðverja..."13 Frá nútíðarsjónarmiði virðist býsna óskammfeilið að kalla Schultz höfund að því riti sem M. St. vísar til að framan, eins og gert er í hinni þýsku og dönsku útgáfu þess. En hafa ber hugfast að á 18. öld báru menn afar tak- markaða virðingu fyrir því sem nú heitir höfundarréttur. Um faðerni þessa rits væri annars þarflaust að fjölyrða ef nýút- komið rit gæfi ekki beint tilefni til þess. Átt er við Verzlunar- sögu íslands 1774—1807 eftir Sigfús Hauk Andrésson. Hér er staðhæft að höfundur Efterretn- inger... sé „þýzkur höfundur, Friedrich Schultz, sem dvaldist um þær mundir [1789-1791] í París..."14 Það er raunar rétthermt, og kemur líka fram í ágripi M. St., að Schultz dvaldist í París á þessu árabili, nánar til- tekið 1789-1790; gaf hann síð- an út rit um veru sína í bylting- arborginni, UeberParis und die Pariser (1791).15 Ætla mætti að þetta sé það rit eftir Schultz sem M. St. vísar til neðanmáls á ein- um stað (s. 19) en samanburður leiðir í ljós að M. St. á hér við þýðingu hans á Rabaut, Efter- retninger... (sbr. „Sýnishorn"). Þannig verður ekki séð að títt- nefndur Friedrich Schultz, sem var annars afkastamikill rithöf- undur (1762-1798), hafi neitt sjálfstætt gildi þegar ræðir um heimildakost M. St. Mergurinn málsins er að Schultz virðist hafa lagt sig fram um að skila texta Rabauts óbjöguðum yfir á læsilega þýsku.16 Hvað viðvíkur dönsku útgáfunni, Efterretning- er..., þá er engar upplýsingar að finna um hver þýddi. En varla er að efa að það er þessi danska útgáfa sem M. St. hafði undir höndum og notfærði sér.17 En hver var þá margnefndur Jean-Paul Rabaut Saint-Etienne? Hann var mótmælendaprestur (f. 1743) og barðist rösklega fýr- ir trúfrelsi. Hann tók síðan mjög virkan þátt í byltingunni, sat á þingum hennar frá upphafi. Á löggjafarþinginu (1791-1792) skipaði hann sér í flokk með Gírondínum og var líflátinn ásamt foringjum þeirra síðla árs 1793- Áður en hann féll frá, var áðurnefnt rit hans um bylting- una, Almanach historique de la révolution franqaise, endurút- gefið, eítir því sem næst verður komist, undir heitinu Précis historique de la Révolution franqoise (1792) og þannig nefnt átti það eftir að birtast margsinnis á næstu áratugum.18 í enskri þýðingu kom ritið út í London 1793 enda var því að hluta beint gegn gagnbyltingar- áróðri Edmunds Burkes hins breska.19 Með því lagði höfund- urinn drög að frjálslyndri sögu- túlkun sem átti eftir að vaxa fylgi á fyrri helmingi 19. aldar.20 Eftir að frásögn Rabauts sleppir, við lok stjórnlaga- þingsins 1791, mun M.St. hafa stuðst mest við danska mánað- arritið Minetva. í því birtust m.a. fréttapistlar af erlendum vettvangi undir fyrirsögninni
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.